fbpx
Þriðjudagur 09.júní 2026
Fréttir

Inga hlynnt því að framhaldsskólar byrji ekki of snemma á morgnana

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 21. maí 2026 13:30

Inga er sammála Degi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, er hlynnt því að framhaldsskólar byrji ekki of snemma á morgnana. Góður svefn sé mikilvægur hluti af líðan nemenda.

Þetta kemur fram í svari Ingu við fyrirspurn Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingar, um upphaf skóladags í framhaldsskólum. En Dagur hefur viljað fresta byrjun skóladags vegna þess að rannsóknir sýna að stærstur hluti framhaldsskólanema fái ekki nægan nætursvefn. Það hafi meðal annars áhrif á námsárangur.

„Ráðherra er mjög umhugað um velferð nemenda og er góður svefn mikilvægur hluti af líðan þeirra og námsgetu. Því er ráðherra hlynntur því að framhaldsskólar hefjist ekki of snemma og telur það vel koma til greina að framhaldsskólar hafi sveigjanlegra upphaf skóladags,“ segir í svari Ingu.

Vísað er í Handbók um geðrækt í framhaldsskólum þar sem fjallað er um ávinning þess að seinka upphafi skóladagsins um 30 til 60 mínútur. Rannsóknir sýndu fram á jákvæðar breytingar þess að seinka upphafi skóladags frá 7:45 og 8:00 til 8:30 og 9:00.

„Jafnframt eru framhaldsskólar í handbókinni hvattir til að skoða það af alvöru að seinka upphafi skóladags í því skyni að stuðla að betri heilsu og líðan nemenda. Vert er að nefna að fjölmargir framhaldsskólar hafa þegar seinkað upphafi skóladags af framangreindum ástæðum,“ segir Inga.

Hefur hún ekki átt formlegt samráð eða samtöl um málið en framhaldsskólum hafi sjálfum verið falið að bera ábyrgð á forvarnarstarfi og setja sér forvarnarstefnu sem skuli birt opinberlega. Þá hafi ráðuneytið stutt við verkefni embættis landlæknis um heilsueflandi framhaldsskóla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi í Taílandi

Segist hafa fengið áreiðanlegar upplýsingar um að Sindri sé í varðhaldi í Taílandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fasteignasali segir fyrstu kaup sjaldan hafa verið aðgengilegri en nú

Fasteignasali segir fyrstu kaup sjaldan hafa verið aðgengilegri en nú
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“