fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 21. maí 2026 15:45

Halldór Jörgen Olesen.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

ESB-aðild sem slík myndi hafa lítil áhrif á verðbólgu hér á landi en upptaka evru myndi lækka verðbólgu markverkt, hún myndi hins vegar minnka sveigjanleika til aðgerða í efnhagsáföllum. Þetta er mat Halldórs Jörgens Olesens, ritstjóra Verðbólguvaktarinnar, sem birtist í aðsendri grein á Visir.is.

„Stutta svarið er að ESB-aðild ein og sér breytir verðbólgu lítið. Það er upptaka evrunnar, sem fylgdi 4–7 árum eftir aðild, sem myndi raunverulega umbreyta verðbólgumynstrinu,“ segir Halldór.

Samandregið er það mat Halldórs að meðalverðbólgu myndi lækka úr 4-6% niður í 2-3% með upptöku evru. Minnstu áhrifin yrðu á húsnæðisliðinn: „Lóðaskortur og byggingartaktur eru utan stjórnar peningastefnu. Það gæti meira að segja versnað: vaxtalægra evruumhverfi gæti ýtt undir frekari verðhækkanir, eins og gerðist á Spáni 2001–2007.“

Halldór segir að þessi lækkun verðbólgu væri marktækt betri en ekkert kraftaverk. Hann segir:

„Spurningin er ekki hvort við viljum lægri verðbólgu, heldur hvort við erum tilbúin að gefa eftir peningastefnusjálfstæði til að ná henni.“

Greinina í heild má lesa hér.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Í gær

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Í gær

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“