fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 21. maí 2026 17:30

Andrea varar hundaeigendur við þessu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrea Björk Hannesdóttir, dýralæknir hjá Dýrheimum, segir nammimenningu hafa vaxið mjög að undanförnu hjá dýraeigendum, einkum hundaeigendum. Þetta bitni á heilsu þeirra og veldur ýmis konar vandamálum.

„Þetta er að aukast alveg svakalega. Þessi nammimenning eins og ég kalla það,“ segir Andrea í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. En hún var þar til viðtals ásamt Ólafi Eini Birgissyni sölustjóra Dýrheima.

Andrea sagðist hafa tekið eftir aukningu heilsufarsvandamála hjá dýrum. Meðal annars ýmis húðeinkenni, ofnæmiseinkenni og meltingarfæraeinkenni. Algengt væri að hundar væru að fá niðurgang.

„Ég set svolítið sama sem merki þarna á milli,“ segir hún um aukna nammigjöf og þessi heilsufarsvandamál.

Hún segir samfélagsmiðla hafa mikil áhrif. Fólk sé „spammað“ með sífelldum auglýsingum og umfjöllunum um dýranammi, einkum hundanammi.

„Ég get varla skrollað niður án þess að fá endalausar nammi og fóðurauglýsingar,“ segir hún. „Ég myndi vara fólk við að prófa of mikið. Stöðugleiki í fóðri er númer eitt, tvö og þrjú þegar við erum að hugsa um heilsu dýra.“

Með því að gefa þeim of margar tegundir gætu dýrin fengið ýmis konar bólgur og jafn vel myndað óþol. Þá verði fólk einnig að hafa í huga að dýrin geta orðið matvandari og ekki viljað hvað sem er.

„Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur,“ segir Andrea.

Eins og áður segir er vandamálið mest hjá hundaeigendum. Fólk gefi köttum minna af aukabitum. Einna helst smá harðfisk eða rjóma.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segir að Pútín sé að tapa stríðinu og það skapi nýtt tækifæri fyrir Trump

Segir að Pútín sé að tapa stríðinu og það skapi nýtt tækifæri fyrir Trump
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“
Fréttir
Í gær

Meintur þjófnaður á fermingarpeningum kom til kasta umboðsmanns Alþingis

Meintur þjófnaður á fermingarpeningum kom til kasta umboðsmanns Alþingis
Fréttir
Í gær

Trump og Netanjahú sagðir hafa átt í hörðum skoðanaskiptum um næstu skref í Íran

Trump og Netanjahú sagðir hafa átt í hörðum skoðanaskiptum um næstu skref í Íran