fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Morgunblaðið segir fjölgun öryrkja mikið áhyggjuefni – „Vinnan göfgar manninn“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 21. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgunblaðið segir í leiðara sínum í dag að hröð fjölgun örorkubótaþega sé mikið áhyggjuefni og veki upp spurningar. „Sú mikla fjölgun getur orðið til þess að vekja efasemdir um kerfið almennt ef hún heldur áfram eða fær að standast, enda má telja með ólíkindum að heilsufari þjóðarinnar hafi á fáum árum hrakað með þeim hætti sem tölurnar benda til,“ segir í leiðara blaðsins í dag.

Vitnað er til nýrrar skýrslu Viðskiptaráðs þar sem kemur fram að hlutfall öryrkja á meðal fólks á vinnualdri hafi farið úr 6,5% árið 2000 upp í 10,4% árið 2025. Hlutfallið hélst svipað áratugina þar á undan. Í skýrslunni kemur fram að geðraskanir og stoðkerfissjúkdómar séu algengasta orsök örorku á Íslandi.

Morgunblaðið bendir á að hlutfallið sé lægra á hinum Norðurlöndunum nema Noregi. Stjórnvöld þurfi að skýra þann mun:

„Þegar horft er til annarra norrænna landa er hlutfallið hér á landi mjög hátt, þó ekki hæst, því að í Noregi er það enn hærra. Í Svíþjóð er það hins vegar innan við helmingur þess sem það er hér og ekki miklu hærra í Finnlandi og jafnvel Danmörku, sem þó er nær okkur. Þetta ólíka hlutfall á Norðurlöndum hlýtur að kalla á sérstaka skoðun því að ætla má að heilsufar sé ekki mjög ólíkt á milli þessara landa og þá er það væntanlega eitthvað annað sem skýrir muninn. Það er nokkuð sem stjórnvöld hljóta að verða að skoða og skýra út, annars vegar vegna þess að miklir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi fyrir skattgreiðendur og hins vegar vegna þess að fólk hefur almennt ekki gott af því að hverfa af vinnumarkaði ef það getur sótt vinnu. Vinnan göfgar manninn eins og sagt er og ekki úr lausu lofti gripið. Þess vegna ættu hvatarnir í kerfinu fremur að vera í þá átt að hvetja til vinnu en letja.“

Blaðið bendir á að við fjölgun bótaþega verði óhjákvæmilega minna til skiptanna fyrir þá sem raunverulega geta ekki unnið.

Bent er á að samkvæmt skýrslunni sé fjölgun ungra öryrkja hröðust og sé það sérstakt áhyggjuefni. Mikilvægt sé að ungt fólk sem ekki þarf á örorkubótum að halda festist ekki í gildru sem erfitt sé að komast úr. Ennfremur segir:

„Viðskiptaráð fjallar ekki síst um þá neikvæðu hvata sem felast í samanburði á bótum og launum. Þar er bent á að í sumum tilvikum borgi sig fyrir fólk á meðallaunum að vera á örorkubótum frekar en að sækja vinnu og slíkt hlýtur augljóslega að draga úr fólki að leita aftur inn á vinnumarkaðinn. En í þessu skiptir líka máli hversu auðvelt eða erfitt er að fá örorku metna og það er nokkuð sem hlýtur að þurfa að skoða hér á landi í ljósi hraðrar fjölgunar bótaþega. Þeir sem þurfa raunverulega á örorkubótunum að halda verða að geta framfleytt sér svo viðunandi sé, en þeir sem geta unnið þurfa að hafa hvata til þess.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“
Fréttir
Í gær

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 
Fréttir
Í gær

„Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni“

„Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni“
Fréttir
Í gær

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar