fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Kynsjúkdómafaraldur í Evrópu – Ísland í vondum málum

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 22. maí 2026 13:00

Notið smokkinn!

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilfelli lekanda í hafa þrefaldast í Evrópu á tíu árum og tilfelli sárasóttar hafa tvöfaldast á sama tíma. Ísland er á meðal þeirra landa þar sem flest tilfelli greinast.

Þetta kemur fram í tölum frá Smitvarnarstofnun Evrópu (ECDC). Um er að ræða tölfræði fyrir árið 2024 sem sína sláandi niðurstöður. Stofnunin hefur áhyggjur af versnandi kynheilbrigði Evrópubúa og búast má við því að tölurnar séu orðnar enn þá hærri núna.

Mikill kynjamunur

Tilfelli lekanda voru skráð 106.331 talsins á svæði Evrópusambandsins og EES svæðisins. Þetta er aukning um 303 prósent frá árinu 2015. Aukningin frá fyrra ári var 8,8 prósent. Tíðnin er 26,9 á hverja 100 þúsund íbúa á svæðinu. Sú hæsta frá upphafi mælinga.

Mun fleiri karlmenn hafa greinst með lekanda en konur, það er 86.327 á móti 18.972 konum. 62 prósent lekandatilfella voru karlmenn sem stunda kynlíf með öðrum karlmönnum. Eru óvarin mök einkum vandamál hjá yngri karlmönnum. Í aldurshópnum 25 til 34 var tíðnin 145,5 á hverja 100 þúsund.

Hæsta tíðni lekanda mælist í Írlandi, það er 109 á hverja 100 þúsund. Þar á eftir koma Malta með 89,6 og Ísland með 88,1 tilfelli á hverja 100 þúsund.

Börn fæðast með sárasótt

Sárasótt, eða sífilis, er einnig á mikilli uppleið í Evrópu. Árið 2024 greindust 45.577 tilfelli á ESB/EES svæðinu. Þetta er tvöföldun frá árinu 2015 og 11 prósent aukning frá fyrra ári.

Langflest tilfellin hafa greinst hjá karlmönnum, það er 36.609. Tíðnin er sex sinnum hærri en hjá konum, það er 19,4 á hverja 100 þúsund á móti 3 hjá konum.

Maltverjar eru Evrópumeistarar í sárasóttarsmitum, 60,3 á hverja 100 þúsund. Íslendingar eru í sjöunda sæti með tíðnina 14,3.

Þrátt fyrir að sárasótt sé mun algengari hjá karlmönnum þá hefur ECDC áhyggjur af fjölgun tilfella hjá konum á barneignaraldri. Fjöldinn tilfella barna sem fæðast með sárasótt tvöfaldaðist á aðeins einu ári. Mesta aukningin mældist í Búlgaríu, Ungverjalandi og Portúgal.

Einu góðu fréttirnar

Tilfelli klamýdíu voru 213.443 árið 2024, eða 63,4 á hverja 100 þúsund. Klamýdía er algengasti kynsjúkdómurinn en jákvæðu fréttirnar í tölum ECDC eru þær að tilfellum fækkaði um 10 prósent frá fyrra ári. Hefur fjöldinn rokkað nokkuð og næstum staðið í stað frá árinu 2015, það er fækkað um 6 prósent á tíu árum.

Þegar kemur að klamýdíu er fjöldi tilfella nokkuð jafn þegar kemur að kynjunum. 107.567 karlar greindust með klamýdíu og 105.253 konur, lang mest fólk á aldrinum 20 til 24 ára.

Norðurlöndin tróna á toppinum þegar kemur að klamýdíusmitum. Þrátt fyrir að telja aðeins um 25 milljónir íbúa þá greindust 35 prósent allra smita á Norðurlöndum.

Skimanir og forvarnir þurfi að vera ódýrar

„Tilfellum kynsjúkdómar hefur verið að fjölga síðustu 10 ár og náðu metfjölda árið 2024. Ómeðhöndlaðar geta þessar sýkingar valdið alvarlegum fylgikvillum, svo sem langvinnum verkjum og ófrjósemi, og í tilfellum sárasóttar, hjarta- eða taugakerfisvandamálum,“ segir Bruno Ciancio yfirmaður hjá ECDC.

Kallar hann eftir auknum skimunum og forvörnum til þess að efla kynheilbrigði. Þessi þjónusta og vörur þurfi að vera ódýrar og auðfáanlegar. Þá þurfi smitaðir að fá að vita eins fljótt og auðið er af smiti sínu til þess að þeir haldi ekki áfram að smita.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu
Fréttir
Í gær

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“

Dagur saumar að sægreifunum: „Þennan leik er löngu tímabært að jafna“