fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. apríl 2026 10:27

Bryn Terfel

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sir Bryn Terfel, sem er álitinn besti bass-baritón heims, kemur til Reykjavíkur þann 10. oktober næstkomandi og heldur tónleika í Hörpu. Velska óperustjarnan á ótrúlegan feril að baki á alþjóðlegum vettvangi, þar sem hann hefur sungið reglulega í virtustu tónlistar- og óperuhöllum heims þar sem hann hefur verið hylltur fyrir öfluga söngrödd sína og segulmagnaða sviðsframkomu eins og segir í tilkynningu.

Í gegnum magnaðan feril hefur hann sungið aðalhlutverk í óperum eins og Falstaff í Óperuhöllinni í Sydney; Tosca í Konunglegu óperuhöllinni í London, The Metropolitan óperunni í New York og Bæversku óperunni í Munchen; Rakaranum frá Sevilla í Óperuhöllinni í Vín; og Niflungahringnum bæði í Konunglegu óperuhöllinni og The Metropolitan óperunni.

Hann syngur fjölda annarra hlutverka meðal annars í Meistarasöngvararnir í Nurnberg, Faust, Brúðkaup Figaro, Cosi fan Tutte, Don Giovanni, Salome, Gianni Schicchi, The Rake’s Progress, Tannhäuser, Peter Grimes, Les Contes d’Hoffmann, L’elisir d‘amore, Fiðlaranum á þakinu, Sweeney Todd og Boris Godunov.

Bryn syngur á tónleikum um allan heim og mun koma fram í Óperuhöllinni í Sydney eftir tónleikana í Hörpu.

Tónleikarnir í Hörpu eru sjaldgæft tækifæri til að hlusta á Bryn í návígi á sviðinu þar sem hann flytur lög af nokkrum verðlaunuðum sólóplötum sem standa nærri hjarta hans. Frá velskum þjóðlögum, sem enduróma frá heimahögum hans, til frægra laga úr söngleikjum, lieder og óperum, mun ótrúleg rödd hans og persónuleiki fylla Eldborgarsalinn og skína skært.

Með Bryn á sviðinu verður píanóleikarinn þekkti Annabel Thwaite, og hörpuleikarinn Hannah Stone, sem er eiginkona hans og samstarfsaðili til fjölda ára. Hún var meðal annars persónulegur hörpuleikari Karls Bretakonungs í fjögur ár. Saman munu þau flytja fagra tónlist, flutta af hreinskilni og sál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis