fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Jón Viðar segir að Kaffistofa Samhjálpar ætti að vera í Ráðhúsinu

Ritstjórn DV
Mánudaginn 20. apríl 2026 16:30

Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvofandi flutningur Kaffistofu Samhjálpar í húsnæði að Grensásvegi 46 er vægast sagt umdeildur. Margir íbúar hafa lagst hart gegn honum og telja að starfsemi af þessu tagi eigi ekki heima í íbúahverfi þar sem búa margar barnafjölskyldur og grunnskólar eru í nágrenninu. Rétt er þó að geta þess að margir íbúar hafa einnig lýst yfir stuðningi við þessi áform.

„Það er mikil hræðsla hjá barnafjölskyldum hér að fá þetta ógæfufólk hingað í hverfið. Svona starfsemi á ekki að fá starfsleyfi í gamalgrónu íbúðahverfi í nálægð við skóla,“ segir Geir Rúnar Bragason, formaður húsfélagsins fyrir Grensásveg 44-48, þangað sem kaffistofan mun flytja, í viðtali við DV í nóvember í fyrra.

Sjá einnig: Uggandi yfir flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg – „Fólk er hrætt og vill bara fara að selja“

Hinn landsþekkti leikhúsgagnrýnandi, Jón Viðar Jónsson, hefur skrifar tvær Facebook-færslur um málið sem vakið hafa athygli. Í þeirri fyrri stingur hann upp á því að Kaffistofa Samhjálpar verði í Ráðhúsi Reykjavíkur:

„Ég hef árum saman fylgst með því göfuga mannúðarstarfi sem Samhjálp hefur haldið úti af frábærri elju og fórnfýsi með rekstri matstofu sem nú á að útskúfa.

Ég sé aðeins eina virkilega góða lausn. Hún er sú að Reykjavíkurborg opni matstofu sem þessa í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar er örugglega enginn vandi að innrétta hentugt húsnæði hvort heldur sem er ofan eða neðanjarðar. Nálægð við mötuneyti starfsmanna einnig ótvíræður kostur. Svo er megnið af þeim sem myndu notfæra sér þessa þjónustu hvort eð er flest viðloðandi miðbæinn.

Borginni er einmitt nú stjórnað af stjórnmálaöflum sem hafa í mislangri sögu barist fyrir eflingu velferðarsamfélagsins, samstöðu og samhjálp með hjábörnum lífsins. Pólitískt viðrar því mjög vel í þessu efni.

Ef einhver vandræði skapast þá er tiltölulega stutt í lögregluna. Svo er ég viss um að margir ungir karlmenn sem æfa bardagaíþróttir, kröftugir og hressir strákar, væru alveg til í að taka að sér gæslustörf í sjálfboðavinnu. Ef þeir eru til í að aðstoða lögreglu við að losa miðborgina við erlenda ófriðarseggi, þá er þetta ekki síður nærtækt og verðugt verkefni.

Skil ekki hvers vegna er ekki löngu búið að koma auga á þessa snilldarlausn – og framkvæma hana.“

Segir staðarvalið fráleitt

Í annarri færslu um máið segist Jón hafa kynnt sér staðhætti og niðurstaðan sé sú að staðarvalið sé fráleitt, enda í miðju íbúahverfi:

„Það er alveg ljóst að þetta staðarval að heita má í miðju íbúahverfi, við tengigötu sem liggur við húsdyr fólks og mun mikið nýtt af börnum, er fráleitt. Forstöðumenn Samhjálpar ættu að sjá það sjálfir, en þeir eru augljóslega búnir að vera í mjög þröngri stöðu alltof lengi.“

Jón Viðar segir málið til skammar fyrir Reykjavíkurborg og bendir á að Hjálpræðisherinn hafi misst aðstöðu sína fyrir sambærilega þjónustu, en hafi mætt skiliningsleysi í borgarkerfinu:

„Skömmin er alfarið Reykjavíkurborgar sem er með allt niðrum sig í þessum efnum. Ég veit ekki til að Hjálpræðisherinn sem var með svipaða þjónustu á Granda og missti aðstöðuna, hafi opnað hana annars staðar. Sögur sem ég hef heyrt innan úr stjórnsýslu borgarinnar benda til að þar hafi Herinn mætt algeru skilningsleysi.

Og það er Samfylkingin, flokkur velferðar og jafnaðarstefnu, sem er ábyrg fyrir þessu. Vitaskuld arfleifð frá Degi B. Eggertssyni. Hinn nýi leiðtogi Samfylkingarinnar þarf víða að taka til hendinni, ef hann kemst til valda nú í vor.“

Töluverðar umræður eru undir þessum skrifum Jóns Viðars og Kristinn Pálsson bendir honum á að Hjálpræðisherinn sé með sína þjónustu í Vogahverfinu, vandræðalaust:

„Herinn er með þessa þjónustu í nýja rauða herkastalanum við Vogahverfið og þar kvartar enginn yfir nálægðinni svo ég viti. Þarna eru tveir salir. Í öðrum þeirra er hægt kaupa málsverð og rennur andvirðið til starfseminnar. Hef ekki komið í hinn salinn en skilst að hann sé rekinn með svipuðu sniði og hjá Samhjálp með fríum máltíðum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“