fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Keypt úr Breiðabliki í Val

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 20. apríl 2026 12:00

Mynd: Valur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valur hefur fengið öflugan liðsstyrk, en Helga Rut Einarsdóttir er komin til félagsins frá Íslandsmeisturum Breiðabliks.

Um er að ræða miðvörð sem er fyrirliði U-19 ára landsliðsins, sem komst á EM á dögunum.

Besta deildin hefst um komandi helgi.

Tilkynning Vals
Helga Rut Einarsdóttir er gengin til liðs við Val frá Breiðabliki. Hún er 19 ára hafsent og fyrirliði U19 landsliðs Íslands, þar sem hún hefur verið lykilmaður í að koma liðinu á EM.

Valur bindur miklar vonir við Helgu, sem þykir bæði hæfileikarík og sterkur leiðtogi. Hún segir sjálf mikinn heiður að ganga til liðs við félagið og hlakkar til að takast á við nýjar áskoranir á Hlíðarenda.

„Það er virkilega spennandi að taka næsta skref með Val. Félagið hefur skýra sýn og mikinn metnað og ég er mjög ánægð að fá tækifæri til að vera hluti af því. Ég kem inn með mikinn vilja til að leggja hart að mér, taka ábyrgð og halda áfram að þróast sem leikmaður.”

Gareth Owen, tæknilegur ráðgjafi hjá Val, er virkilega ánægður með komu Helgu til félagsins:

„Að fá Helgu Rut til liðs við okkur styrkir liðið okkar mikið fyrir komandi tímabil. Við erum ekki aðeins að fá afar hæfileikaríkan leikmann heldur einnig öflugan leiðtoga. Við teljum að hún hafi alla þá eiginleika sem þarf til að verða lykilleikmaður hér hjá Val og allir innan félagsins eru ánægðir með að fá hana til okkar.“

Velkomin í Val, Helga Rut!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Besta deildin áfram á Sýn á næsta ári

Besta deildin áfram á Sýn á næsta ári
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Liverpool alvarlega að íhuga sölu í sumar

Liverpool alvarlega að íhuga sölu í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Samfélagið slegið eftir skyndilegt fráfall – Var ungur og framúrskarandi einstaklingur

Samfélagið slegið eftir skyndilegt fráfall – Var ungur og framúrskarandi einstaklingur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Liverpool skoðar tvo leikmenn Monaco en fá samkeppni

Liverpool skoðar tvo leikmenn Monaco en fá samkeppni
433Sport
Í gær

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag
433Sport
Í gær

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný