fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. apríl 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndskeið sem var nýlega birt opinberlega sýnir hetjulega framgöngu skólastjóra við Pauls Valley-menntaskólann í Oklahoma í Bandaríkjunum þegar hann hljóp í átt að skothríð og yfirbugaði vopnaðan fyrrverandi nemanda sem hafði ætlað sér að fremja skotárás í skólanum.

Samkvæmt dómskjölum sem sjónvarpsstöðin KFOR hefur undir höndum gekk Victor Lee Hawkins, 20 ára fyrrverandi nemandi, inn í skólann þann 7. apríl síðastliðinn með tvær hlaðnar hálfsjálfvirkar skammbyssur.

Hann skipaði fólki að leggjast á gólfið og reyndi að skjóta nemanda, en árásin mistókst þegar byssan sem hann ætlaði að nota stóð á sér. Í kjölfarið skaut hann að öðrum nemanda en hitti ekki.

Þegar nemendur tóku til fótanna hljóp skólastjórinn, Kirk Moore, í átt að skothríðinni. Hann ruddist inn í anddyri skólans og stökk á Hawkins, náði skammbyssu úr hendi hans og hélt honum niðri þar til aðstoðarskólastjórinn kom til hjálpar. Saman héldu þeir árásarmanninum niðri þar til lögregla mætti á vettvang.

Moore, sem er sextugur, hlaut skotsár á hægri fótlegg í átökunum. Hann hefur síðan verið útskrifaður af sjúkrahúsi og er á batavegi.

Hawkins mun hafa sagt lögreglu að hann hefði stolið byssum föður síns og ekið bíl hans að skólanum. Hann sagðist hafa viljað framkvæma „sína eigin skotárás í skóla í anda Columbine“ og að Moore hefði verið sérstakt skotmark þar sem honum hefði ekki líkað við hann.

Columbine-skotárásin er ein alræmdasta skotárásin í sögu Bandaríkjanna, en hún átti sér stað í apríl 1999 þegar tveir nemendur skutu 14 manns til bana í samnefndum skóla.

Lögreglustjórinn í Pauls Valley, Don May, segir við NBC News að skjót viðbrögð Moore hafi komið í veg fyrir stórfelldan harmleik.

„Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna,“ sagði May.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon