fbpx
Mánudagur 19.janúar 2026
Fréttir

Kúbverji fær ekki vegabréfsáritun til Íslands – Sagt að kvarta við Svía

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 12. desember 2025 12:30

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir einstaklingar, annar þeirra kona búsett á Kúbu, lögðu fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis þar sem konunni var neitað um vegabréfsáritun til Íslands. Það var sænska sendiráðið á Kúbu sem neitaði konunni um áritunina en samkvæmt samningi sjá Svíar um fyrirsvar vegna vegabréfsáritana til Íslands á Kúbu. Umboðsmaður tók undir með íslenskum stjórnvöldum um að öllum kærum og kvörtunum vegna synjana á vegabréfsáritunum frá Kúbu yrði að beina til Svíþjóðar.

Nokkuð er liðið frá synjunni sem var í ágúst 2023 en kvörtunin til umboðsmanns var lögð fram í mars 2024. Samkvæmt bréfi umboðsmanns Alþingis til kvartendanna var synjunin staðfest af sænskum stjórnsýsludómstól.

Í kvörtuninni kom fram að gerðar væru athugasemdir við málsmeðferð og efnislega niðurstöðu sænskra yfirvalda og að ákvörðun sendiráðsins hafi sætt endurkoðun innan sænska réttarkerfisins. Var þar lýst efasemdum um að sænskum yfirvöldum hafi verið falin afgreiðsla umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands með fullnægjandi hætti og vísað til þess að ákvarðanir þeirra hafi verið á ábyrgð íslenskra stjórnvalda og þau því verið bær til að taka þær til endurskoðunar.

Þá voru gerðar athugasemdir við að fyrirsvarssamningur Íslands og Svíþjóðar, um framsal valds til að verða við og hafna umsóknum um vegabréfsáritanir vegna ferðalaga til Íslands, hafi ekki verið birtur í C-deild Stjórnartíðinda.

Ráðuneyti

Umboðsmaður leitaði skýringa hjá bæði dómsmálaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu.

Fyrrnefnda ráðuneytið sagði meðal annars að í Schengen-samstarfinu hafi fyrirkomulagið verið með þeim hætti að ef til greina kæmi að synja umsókn um vegabréfsáritun af hálfu fyrirsvarsríkis væri málinu vísað til afgreiðslu hjá því ríki sem unnið væri fyrir. Það fyrirkomulag hafi þróast á þá leið að ríki sem sinntu fyrirsvari fyrir önnur ríki gerðu í auknum mæli kröfu um að sinna vegabréfsáritunarferlinu að öllu leyti þannig að þeim yrði heimilt að synja umsóknum og sinna málskotum. Með Evrópureglugerð Evrópuþingsins og ráðins hafi fyrirkomulaginu verið lögformlega breytt þannig að aðildarríki sem veiti fyrirsvar beri að meginreglu ábyrgð á öllu vegabréfsáritunarferlinu án aðkomu aðildarríkisins sem njóti fyrirsvars.

Það er að segja að Svíar sjái í þessu tilfelli algerlega um allt ferlið án aðkomu Íslands.

Tók ráðuneytið það einnig fram að í þeim tilvikum sem Ísland hafi gert fyrirsvarssamninga við ríki innan Schengen-samstarfsins hafi viðkomandi ríki verið falið að sjá alfarið um málsmeðferðina þegar sótt sé um vegabréfsáritun til Íslands sem meginákvörðunarstaðar og að um málskotsrétt fari samkvæmt reglum þess ríkis. Í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafi á þeim kröfum sem Schengen-samstarfið geri til fyrirsvarssamninga vegna vegabréfsáritana sé það afstaða ráðuneytisins að slíkir samningar girði að öllu leyti fyrir heimildir íslenskra stjórnvalda til þess að hafa afskipti af eða taka ákvörðun um slíkar umsóknir.

Lög

Því næst er í bréfi umboðsmanns gerð ítarleg grein fyrir lagalegum grundvelli málsins en niðurstaðan er að í gildandi lögum sé finna heimild til að veita utanríkisþjónustu annars ríkis, sem taki þátt í Schengen-samstarfinu, vald til að hafna umsókn um vegabréfsáritun. Af lögskýringargögnum verði jafnframt ráðið að hálfu löggjafans hafi verið gengið út frá því að í þeim tilvikum fari fullnaðarafgreiðsla málsins fram innan stjórnsýslu þess ríkis en ekki hér á landi. Sé það fyrirkomulag enn fremur í samræmi við Evrópureglugerð og þær breytingar sem á henni hafa verið gerðar. Þá sé ekki fyrir að fara kærusambandi milli sænskra og íslenskra stjórnvalda.

Segir umboðsmaður að því verði að líta svo á að með fyrirsvarssamningi Íslands og Svíþjóðar hafi sænskum yfirvöldum verið falin slík fullnaðarafgreiðsla á umsóknum um vegabréfsáritanir til Íslands frá Kúbu. Þar af leiðandi sé ekki tilefni til að gera athugasemdir við framsal ákvörðunarinnar eins og lögum sé nú háttað eða þá afstöðu dómsmálaráðuneytisins að um málskotsrétt fari eftir lögum þess ríkis sem fari með fyrirsvar vegabréfsáritana fyrir Íslands hönd.

C

Þegar kemur að þeim lið kvörtunarinnar að fyrirsvarssamningur Íslands og Svíþjóðar hafi ekki verið birtur í C-deild Stjórnartíðinda og þar með ekki öðlast réttaráhrif og þar með hafi íslensk stjórnvöld átt að taka við umsókninni sagði í skýringum utanríkisráðuneytisins að beiting fyrirsvarssamninga sé ekki háð birtingu þeirra í C-deild Stjórnartíðinda. Þannig feli fyrirsvarssamningar ekki í sér fyrirmæli sem séu bindandi fyrir almenning eða borgara heldur séu þeir gerðir til að stuðla að því að áritunarskyldir aðilar geti sótt um vegabréfsáritun til að koma til landsins.

Umboðsmaður tekur undir þessa afstöðu ráðuneytisins og segir að þær reglur sem gildi um útgáfu vegabréfsáritana séu samræmdar á Schengen-svæðinu og séu skilyrðin sem uppfylla þurfi fyrir vegabréfsáritun þau sömu þótt gerður hafi verið samningur um fyrirsvar. Því sé ekki unnt að líta svo á að slíkur samningur feli í sér bindandi réttarreglur sem beint sé út á við að borgurunum heldur sé þar fremur um að ræða útfærslu á innra fyrirkomulagi við útgáfu vegabréfsáritana.

Telur umboðsmaður sig því ekki hafa forsendur til að fullyrða að ekki hafi verið heimilt að beita umræddum fyrirsvarssamningi án birtingar hans í C-deild Stjórnartíðanda.

Því stendur eftir að umboðsmaður tekur undir með stjórnvöldum um að allar úrlausnir vegna vegabréfsáritana frá Kúbu til Íslands verði að fara alfarið fram á vegum sænskra yfirvalda á grundvelli fyrirsvarssamnings Svíþjóðar og Íslands.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ólympíumeistari fyrir dóm – Sakaður um að hafa nauðgað barni

Ólympíumeistari fyrir dóm – Sakaður um að hafa nauðgað barni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Enn og aftur tapar Jeanine Pirro – Heimilislaus maður sýknaður á hálftíma fyrir að beina laser að þyrlu Trump

Enn og aftur tapar Jeanine Pirro – Heimilislaus maður sýknaður á hálftíma fyrir að beina laser að þyrlu Trump
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar um vændismál Guðbrands – „Það eru menn sem virðast alltaf reiðubúnir að „kíkja í pakkann““

Stefán Einar um vændismál Guðbrands – „Það eru menn sem virðast alltaf reiðubúnir að „kíkja í pakkann““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Myndband: Stórkostleg stemning hjá íslenskum stuðningsmönnum eftir sigurinn gegn Ítalíu

Myndband: Stórkostleg stemning hjá íslenskum stuðningsmönnum eftir sigurinn gegn Ítalíu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Óhugnanleg tilfinning að menn sem ég hef unnið með hafi þessi viðhorf til kvenna“

„Óhugnanleg tilfinning að menn sem ég hef unnið með hafi þessi viðhorf til kvenna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nauðungarvistuð eftir að hún braust inn til þekkts fjárfestis og sagðist búa með honum

Nauðungarvistuð eftir að hún braust inn til þekkts fjárfestis og sagðist búa með honum