fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. maí 2026 17:02

Mynd: Facebook-síða Lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurnesjum hefur svarað gagnrýni sjónarvottar vegna viðbragða lögreglumanna við alvarlegu atviki sem varð í kirkjugarðinum í Keflavík í morgun þegar maður í geðrofi kveikti í sér. Segir lögreglan að meðvituð ákvörðun hafi verið tekin um að beita rafbyssu gegn manninum og að sjónarvotturinn hafi verið látinn eyða myndbandi, sem hann tók af atvikinu, til að vernda manninn.

Lögreglan hefur sagt að maðurinn hafi hellt eldfimum vökva yfir sig og kveikt sjálfur í. Sjónarvotturinn hefur leitt að því líkum í samtölum við fjölmiðla að rafbyssa lögreglumanns hafi orðið til þess að kviknað hafi í vökvanum og þar með hafi verið um að ræða ranga ákvörðun sem hafi virst tekin í óðagoti. Hann var þó ekki tilbúinn til að fullyrða það og vísaði til þess að hann hefði verið um 30 metra í burtu. Hann gagnrýndi einnig að lögreglumaður hefði fyrirskipað honum að eyða myndbandi sem hann tók af atburðarásinni.

Meðvitað

Tilkynning lögreglunnar á Suðurnesjum fer hér á eftir í heild sinni:

Að gefnu tilefni vill embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum koma eftirfarandi á framfæri.

Við notkun rafvarnarvopns við handtöku fyrr í dag tóku lögreglumenn upplýsta ákvörðun um að beita því. Lögreglumenn veltu öðrum valbeitingarvalkostum fyrir sér en mátu hættuna af skaða fyrir viðkomandi, mikla sem og hættu fyrir þau sjálf vera þess eðlis að beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn.

Við skoðun embættisins á myndefni sem og tölfræði sem rafvarnarvopnið heldur upplýsingar um er hægt að segja að lögreglumaður sendi pílur úr rafvarnarvopinu á löngu færi sem náði ekki tilætluðum árangri þ.e. rafleiðni var í algjör lágmarki, ef nokkur.

Varðandi þann þátt aðgerðarinnar að lögreglumenn á vettvangi hafi farið fram á það við vegfaranda sem var að taka upp á símann sinn að viðkomandi myndi eyða myndefninu. Þetta var gert til þess að gæta hagsmuna þess sem var þarna í miklu ójafnvægi og án fata.

Nefnd um eftirlit með lögreglu mun fá málið til skoðunar frá embættinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn