

Erlendur nemandi sem leigði bílaleigubíl er í miklum fjárhagskröggum vegna kröfu bílaleigunnar vegna rispa á bílfelgu. Nemandinn taldi sig vera fulltryggðan.
„Í alvörunni, mig langar að fara að gráta,“ segir nemandinn í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. Ástæðan er sú að bílaleigan er að krefja hann um væna summu fyrir rispaða bílfelgu. Fjárhagurinn er farinn í skrúfuna vegna þessa.
„Ég er skiptinemi sem hef ekki mikið á milli handanna. Ég sparaði árum saman fyrir þessa ferð og leigði bíl af því að vefsíðan sagði að tryggðir þyrftu að borga 0 krónur fyrir allar týpur skemmda,“ segir neminn sem lenti í því að dekk sprakk. Segist hann hafa keypt nýtt dekk á 37 þúsund krónur og skipt um það sjálfur. „Við héldum að allt væri í lagi.“
En svo kom reikningurinn frá bílaleigunni, 192.951 krónur (1.400 dollarar) vegna nokkurra rispa á felgunni. Var nemanum bent á að samkvæmt smáa letrinu væru hjólbarðarnir og felgurnar ekki inni í tryggingunni.
„1.400 dollarar er leigan mín og matur fyrir nokkra mánuði,“ segir neminn. „Ég elskaði landslagið en þetta fjárhagslega högg finnst mér vera eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína.“
Varar hann aðra við, að þegar bílaleigur segjast tryggja allt saman, þá þýði það ekki endilega allt.