fbpx
Þriðjudagur 16.júní 2026
Fréttir

Bandaríkjaþing samþykkir útnefningu hins umdeilda sendiherra Billy Long – Grínaðist með innlimun Íslands

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 19. maí 2026 12:30

Long er ekki vinsæll hér á landi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt útnefningu Donald Trump Bandaríkjaforseta á Billy Long sem sendiherra til Íslands. Long, sem hefur stutt við málstað nýnasista á samfélagsmiðlum, grínaðist með innlimun Íslands inn í Bandaríkin við litla hrifningu hér á landi.

Long var á meðal 50 skipaðra embættismanna sem þingið samþykkti eins og segir í frétt dagblaðsins Washington Post um málið. Long er hins vegar sá umdeildasti.

Þegar tilkynnt var að Trump hefði útnefnt Long sem sendiherra á Íslandi sagði Long að Ísland yrði 52. fylki Bandaríkjanna. Var það augljós útfærsla hótana Trump í garð Kanada og Grænlands, sem hann hefur sagst vilja innlima inn í Bandaríkin. Kanada sagðist hann vilja gera að 51. fylkinu.

Sjá einnig:

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Í ljósi ógnarinnar frá Washington tóku Íslendingar illa í þetta „grín“. Til að mynda sagði Sigmar Guðmundsson, þingmaður, að ummælin væru grafalvarleg. Þá var safnað undirskriftum gegn komu Long til Íslands. Vildu margir að Ísland beitti 4. grein Vínarsáttmálans til að koma í veg fyrir skipun hans. En samkvæmt sáttmálanum getur ríki hafnað einstaka sendiherrum.

Long hefur heldur ekki hætt að hneyksla fólk eftir þetta en nýlega deildi hann færslu nýnasistans Nick Fuentes. En Fuentes hefur getið sér orð fyrir öfgar, meðal annars vill hann svipta konur kosningarétti og rétti til menntunar, styður Adolf Hitler og krossfarirnar.

Útnefning Long var samþykkt í þinginu með 46 atkvæðum Repúblikana gegn 43 atkvæðum Demókrata.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

„Þá drep ég þig og þennan hund“

„Þá drep ég þig og þennan hund“
Fréttir
Í gær

Jón Pétur fékk þingmenn til að svara óvenjulegri könnun – „Mig langar bara að fólk fái gott í hjartað“

Jón Pétur fékk þingmenn til að svara óvenjulegri könnun – „Mig langar bara að fólk fái gott í hjartað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir Íslendinga sjálfa gera það sem þeir gagnrýni útlendinga fyrir – „Við erum sjálf „þetta fólk““

Segir Íslendinga sjálfa gera það sem þeir gagnrýni útlendinga fyrir – „Við erum sjálf „þetta fólk““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta fær nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar í laun

Þetta fær nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar í laun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grét í heilan dag af vonbrigðum – „Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja“

Grét í heilan dag af vonbrigðum – „Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“