

Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning kl. 09:10 um einstakling í ójafnvægi í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar.
„Þegar lögregla kom á vettvang var viðkomandi ógnandi, æstur og fór ekki að fyrirmælum lögreglunnar,“ segir í tilkynningunni.
Viðkomandi hafði hellt yfir sig bensíni og hótaði að kveikja í sér. Lögregla beitti rafvarnarvopni til að yfirbuga viðkomandi, sem virtist ekki skila árangri.
„Viðkomandi nær þá að bera eld að sér með kveikjara sem hann hafði meðferðis. Hann var færður á sjúkrahús til aðhlynningar með brunasár víða,“ segir í tilkynningunni.
Í ábendingu sjónarvotts sem DV fékk segir að atvikið hafi átt sér stað við gamla kirkjugarðinn í Keflavík.
„Ég var að labba hjá gamla kirkjugarðinum í Keflavík og sá fullt af löggum og manni á nærbuxunum alveg óvopnaður en hélt á grill eldsneytis brúsa lögreglan byrjar að hóta honum með rafbyssu og svo skýtur hann eftir að hann hafi hélt eldsneyti yfir sig,“ segir sjónarvotturinn.
Sakar hann lögreglu um að hafa brugðist illa við þessu.
„Löggan stendur þarna eins og gungur reyna ekkert að bregðast við aðstæðunum að hann var allur í eldi og hlaupandi og öskrandi svo byrjar hann að rúlla sér og ennþá standa löggurnar og horfa bara á og gera ekkert meðan ég öskra á þær ekki standa bara þarna og gera ekki neitt,“ segir hann.