fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Vildi fá hærri bætur af því hann var 17 ára

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. maí 2026 17:30

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu ungs manns um að ríkið greiði honum hærri bætur en það bauðst til að greiða vegna aðgerða lögreglu sem beindust að honum. Vildi ungi maðurinn meina að þar sem hann hefði verið 17 ára og þar með ekki orðinn lögráða þegar afskiptin áttu sér stað væri miski hans meiri en ella og hann ætti því hærri rétt á bótum.

Ungi maðurinn krafðist 90.000 króna í bætur auk vaxta en ríkið hafði boðið honum 25.000 krónur.

Árið 2021, um þremur vikum áður en maðurinn varð 18 ára var lögreglu tilkynnt, um klukkan 2 að nóttu til, að við bensínstöð Olís við Álfheima í Reykjavík væri maður í andlegu ójafnvægi, sem talaði í síma og segðist vera með hníf. þegar lögreglumenn komu á staðinn sat ungi maðurinn í ökumannssæti bifreiðar við bensínstöðina en tveir vinir hans voru farþegar í bifreiðinni.

Annar farþeganna sagðist hafa talað í síma utan við bifreiðina en ekki minnst á neinn hníf. Ökumaðurinn heimilaði leit í bifreiðinni en ekkert athugavert fannst í henni og lögreglan fór í kjölfarið af vettvangi.

Fyrir dómi sagði ungi maðurinn að lögreglumennirnir hefðu farið fram á að framkvæma líkamsleit á honum en hann hafnað því að leyfa það en heimilað leit í bifreiðinni. Vinir hans hefðu hins vegar heimilað slíka leit á þeim.

Tvö ár

Tveimur árum eftir atvikið krafðist ungi maðurinn bóta frá ríkinu vegna leitarinnar í bílnum. Honum voru boðnar 25.000 krónur en taldi upphæðina of lága og höfðaði mál.

Meðal annars byggði hann á því að við mat á miska hans yrði litið til þess að hann hafi verið undir lögaldri er afskipti voru höfð af honum, en hvorki foreldrum, forráðamönnum né barnaverndaryfirvöldum hafi verið gert viðvart um málið. Eðli málsins samkvæmt væri miski hans því hærri og taldi hann miska sinn hæfilega metinn 90.000 krónur en krafðist þar að auki vaxta ofan á bótaupphæðina.

Ríkið vísaði í sinni málsvörn meðal annars til þess að leitin í bifreiðinni hafi verið fyllilega lögmæt og réttmætt tilefni hafi verið til hennar enda hefði lögreglu borist tilkynning um mann sem segðist vera með hníf. Ungi maðurinn hefði veitt leyfi til leitarinnar. Bótakrafa hans væri of há, í engu samræmi við dómaframkvæmd í sambærilegum málum og ekki byggð á neinum gögnum. Hann hefði heldur ekki sýnt fram á hvers vegna hann ætti að fá hærri bætur en ella vegna aldurs síns. Ríkið mótmælti einnig kröfunni um vexti meðal annars á þeim forsendum að miskabætur sem dæmdar væru vegna tilfella af þessu tagi bæru ekki vexti.

25.000

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir að þroski manna sé misjafn og því misjafnt hvenær fólk hafi náð þeim þroska að teljast ekki lengur barn heldur fullorðinn. Það gerist ekki yfir nótt og ekki nákvæmlega þann dag þegar fólk verði fullra 18 ára og fái sjálfræði sitt. Maðurinn hafi hins vegar lagt það til grundvallar að hefði lögreglan haft afskipti af honum þegar hann var orðinn 18 ára hefði miski hans verið minni.

Fer dómurinn síðan yfir ýmis ákvæði laga sem varða fólk sem er 17 ára. Dómurinn bendir á að þegar atvikið átti sér stað hafi maðurinn þegar öðlast ökuréttindi í samræmi við ákvæði umferðarlaga. Því hljóti hann að hafa talið sig vera nógu fullorðinn til þess að vera við akstur um miðja nótt. Hann hafi verið nógu fullorðinn og þroskaður til þess að mótmæla því að leitað yrði eftir hníf á honum utan
klæða. Telja verður að sá sem uppfylli skilyrði laga til þess að hafa umráð bifreiðar geti einnig heimilað lögreglumönnum leit í henni, þar með talið í hanskahólfi. Til þess sé að líta að lögregla hafi einungis verið að bregðast við tilkynningu borgara og hafi maðurinn aldrei verið neinum sökum borinn. Segir því næst í dómnum:

Eins og rakið hefur verið endurspeglast víða í lögum sú staðreynd að aukinn þroski helst alla jafna í hendur við hækkaðan aldur. Með auknum þroska ráða menn alla jafna við erfiðari aðstæður en menn gerðu t.d. árið áður eða nýjar aðstæður. Að sama skapi verður að gera ráð fyrir að þol manna fyrir miska aukist með hærri aldri og auknum þroska.

Dómurinn segir manninn ekki hafa sýnt fram að hefði atvikið átti sér stað um þremur vikum síðar eftir að hann var orðinn 18 ára hefði miski hans verið minni og áfallið minna. Engar sönnur hafi verið færðar á að miski hans hafi verið meiri en almennt megi gera ráð fyrir að fylgi aðgerðum eins og þessari sem hann varð fyrir.

Því er ekki fallist á kröfur mannsins um hærri bætur en honum hafi verið boðnar upphaflega. Dómurinn fellst heldur ekki á kröfu hans um að bæturnar beri vexti og vísar þar meðal annarstil þess að málið hafði verið höfðað átta mánuðum eftir að fyrir lá hversu háar bætur ríkið bauð. Þó er fallist á að dráttarvextir bætist við upphæðina frá dómsuppkvaðningu og þar til bæturnar, sem eru eins og áður segir 25.000 krónurm verði greiddar.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn