

Fjarlægja þurfti báða handleggi af ungum dreng eftir hundaárás. Móðirin hélt að drengurinn myndi ekki lifa árásina af.
„Ég hélt að þetta væri búið. En barnið mitt er hérna enn þá. Hann fór ekki neitt,“ segir Preshauna Jones, móðir hins 6 ára Romell Jones, í viðtali við miðilinn Click on Detroit. En Romell varð fyrir lífshættulegri árás tveggja bolabíta þann 19. mars síðastliðinn.
Eins segir í færslu með söfnun fyrir Romell litla á síðunni Go Fund Me þá var árásin það alvarleg að fjarlægja þurfti báða handleggina af honum með skurðaðgerð.
Það er ekki það eina, því að hann hefur fengið ítrekaðar sýkingar eftir bitin og þurft að undirgangast nokkrar skurðaðgerðir. Hann hefur verið meira og minna á gjörgæsludeild í tvo mánuði en er núna kominn heim til sín.
Bolabítarnir réðust ekki aðeins á handleggi Romell heldur fótleggi hans einnig. Fékk hann mjög alvarlega áverka á fótleggjunum. Hefur hann þurft að byrja að læra að ganga upp á nýtt og líf hans er gjörbreytt án handleggjanna.
„Ég þarf að mata hann núna,“ segir Preshauna. „Hann var rétt byrjaður að geta gert svona hluti sjálfur. Nú þarf ég að vera hendurnar hans. Þetta er stöðug áminning um daginn sem þetta gerðist. Allt var í himna lagi eina stundina en svo á einu augnabliki var allt orðið breytt.“