fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 18. maí 2026 11:59

Eftiförin var stórhættuleg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír voru fluttir á Landspítalann eftir að eftirför lauk á frárein frá Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Eftirförinni lauk þegar ökufanturinn ók aftan á aðra bifreið.

Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Segir að tilkynning hafi borist skömmu fyrir klukkan tíu um að bíl væri ekið á ofsahraða frá Suðurnesjum eftir Reykjanesbraut í átt að Hafnarfirði.

„Þar hófst eftirför embættisins, en fyrrnefndri bifreið var ekið eftir Reykjanesbraut um Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík, en þar lauk eftirförinni þegar ökufanturinn ók aftan á aðra bifreið,“ segir í tilkynningunni. „Við áreksturinn höfnuðu báðar bifreiðarnar utan vegar. Tveir voru í bifreiðinni, sem ekið var á og voru báðir fluttir á slysadeild, en ekki er talið að meiðsli þeirra séu alvarleg. Ökufanturinn, piltur undir tvítugu, var handtekinn á vettvangi og í framhaldinu fluttur á Landspítalann til aðhlynningar.“

Vísir greindi frá því gær að og birti myndbönd frá sjónarvottum af hasarnum. En tveir sjúkrabílar og dælubíll voru send á vettvang slysanna.

„Ekki þarf að fara mörgum orðum um alvarleikann að aka með þessum hætti, en ljóst er að ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu með aksturslagi sínu. Í Hafnarfirði ók hann jafnframt stuttlega inn í  Áslandshverfið á meðan eftirförinni stóð. Lögreglumenn settu út tvær naglamottur, aðra í Hafnarfirði og hina í Garðabæ, þegar reynt var að stöðva ökufantinn,“ segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn