fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Hverju skilaði fundur Trumps og Jinping? – Allt heimshagkerfið orðið háð Kína

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 18. maí 2026 13:30

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti heimsótti Xi Jinping forseta Kína til Beijing í síðustu viku. Afraksturinn af fundi þeirra er óljós en að mati Hilmars Þórs Hilmarssonar, prófessors við Háskólann á Akureyri, er tónn Trumps í garð Kína að mildast.

„Það má deila um það hvort fundur Donald Trump og Xi Jinping hafi breytt miklu eða litlu. Það var ekkert mikilvægt ákveðið, en það gerðist ekki sem skaðar samskipti stórveldanna, engar áberandi eða harðar deildur. Það er mikilvægt að leiðtogarnir hittist og að þeir tali saman reglulega. Síðasti fundur þeirra var í október 2025 í Suður-Kóreu. Í grundvallaratriðum heldur stórveldasamkeppnin áfram eins og fyrir fundinn. Það er samt mikilvægt að halda samskiptum opnum. Vonandi halda leiðtogarnir áfram að hittast reglulega,“ segir Hilmar og bendir á að kínverska hagkerfið er orðið stærra en það bandaríska:

„Þegar stórveldi sem hefur verið ráðandi í heiminum stendur frammi fyrir öðru stórveldi sem er að stækka og getur orðið stærst í fyrirsjáanlegri framtíð skapast spenna sem getur leitt til átaka. Á jafnvirðisgengi er kínverska hagkerfið þegar orðið stærra en það bandaríska.“

Hilmar túlka tóninn í skilaboðum forseta Kína á þann veg að hann telji að Bandaríkin og Kína eigi að vera samstarfsaðilar fremur en keppinautar, sýna hvort öðru virðingu og vinna saman. Segir Hilmar að ekki sé hægt að stöðva vöxt Kína eða halda aftur af Kína og innilokunarstefna eins og beitt var gegn Sovétríkjunum muni ekki ganga.

Allt önnur staða en á tíma Sovétríkjanna.

Hilmar segir:

„Kína er útflutningsdrifið hagkerfi og heimshagkerfið  er allt orðið háð Kína. Þetta er allt önnur staða en stórveldasamkeppnin sem var milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Sovétríkin voru að mestu lokað hagkerfi. Svo hefur Kína mikið vogarafl gagnvart Bandaríkjunum. Háum tollum var svarað þannig að þá myndi útflutningur á sjaldgæfum málmum til Bandaríkjanna minnka. Verksmiðjur í Asíu eru ekki aðeins háðar Kína með íhluti heldur líka verksmiðjur í Bandaríkjunum og Evrópu. Kína hefur náð að nýta sér stærðarhagkvæmni og sérhæfingu betur en nokkuð annað land í heiminum hefur gert. Það hjálpar líka að Kína hefur ekki verið í stríði síðan 1979.

Trump kom með marga viðskiptaleiðtoga frá Bandaríkjunum á fundinn og sýndi þannig styrk Bandaríkjanna. Auðvitað eru Bandaríkin mjög öflugt hagkerfi með mörgum hátæknifyrirtækjum sem eru leiðandi í heiminum.“

Mikilvægt að Taívan lýsi ekki yfir sjálfstæði

„Málefni Taívan voru rædd og mikilvægt er að Taívan lýsi ekki formlega yfir sjálfstæði enda er líklegt að það leiði til átaka. Ferð Nancy Pelosi, þá forseta fulltrúdeildar Bandaríkjaþings til Taívan í ágúst 2022, var ekki gagnleg að mínu mati. Aðeins til þess fallin að auka spennuna, sem er það síðasta sem heimurinn þarf nú. Ég held líka að Trump skilji að það síðasta sem Bandaríkin þurfa nú er stríð í Austur-Asíu vegna Taívan sem er í u.þ.b. 10.000 kílómetra fjarlægð frá Bandaríkjunum. Hvorki sér fyrir endann á stríðinu í Úkraínu né Íran.

Íran-stríðið og Hormússund

„Varðandi Íran-stríðið voru báðir leiðtogarnir sammála um að það þurfi að opna Hormússund. Ef eitthvert land getur haft áhrif á Íran þá er það Kína. Ég held hinsvegar að Kína noti áhrif sín gagnvart Íran sparlega og þá helst þegar það þjónar þjóðarhagsmunum Kína. Við vitum samt ekki nákvæmlega hvað er að gerast á bakvið tjöldin. Best væri að finna málamiðlun og bæði löndin, Bandaríkin og Íran, lýsi yfir sigri og síðan opnist Hormússund. Heimshagkerfið þolir þetta ástand ekki mikið lengur.“

Vilja að Úkraínu-stríðinu ljúki

„Varðandi Úkraínustríðið kom fram að báðir leiðtogarnir vilja að stríðinu ljúki. Einn styrkur Trump er að hann er viljugur að taka upp símann og hringja í andstæðinga eða hitta þá. Evrópuleiðtogar tala ekki við Pútin, en Trump gerir það. Úkraínustríðið er harmleikur, ólögleg innrás og ber að fordæma. Samt er það aldrei þannig í alþjóðasamskiptum að annar aðilinn hafi algerlega rétt fyrir sér og hinn algerlega rangt. Það þarf að finna málamiðlun. Rússland er ekki að fara að sigra á þann hátt að það taki alla Úkraínu og Úkraína getur ekki tekið til baka allt það landsvæði sem Rússar hafa þegar tekið.“

Staða smáríkja

„Svo veltir maður fyrir sér hvernig smáríki eiga að hegða sér í þessum miskunnarlausa heimi stórvelda. Þeir sem eru barnalegir í alþjóðasamskiptum verða verst úti, þjást mest. Smærri ríki eiga að mínu mati að forðast að lenda á milli stórvelda þegar þau takast á.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“

Hljóðupptaka bendir til að eigandi gistiheimilis í Þverholti selji fíkniefni í stórum stíl – „Já, ef þú ert með einhvern aur“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“

Þrír slasaðir eftir eftirför lögreglu á Reykjanesbrautinni – „Ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“

Lýsir yfir ábyrgð og íhugar að stíga til hliðar – „Kannski er minn tími kominn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn