fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fréttir

Árni Tómas er látinn

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. maí 2026 07:15

Árni Tómas. Mynd/Skjáskot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Tómas Ragnarsson læknir er látinn, 76 ára að aldri. Árni fæddist í Reykjavík þann 19. janúar 1950 og lést þann 27. apríl síðastliðinn.

Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag.

Foreldrar Árna voru Ragnar Tómas Árnason útvarpsþulur og verslunarmaður og Jónína Vigdís Kristjánsdóttir Schram læknaritari. Árni var Vesturbæingur og grjótharður KR-ingur og bjó lengst af við Vesturgötuna í húsi afa síns og ömmu sem hann festi kaup á.

Hann fékk sérfræðileyfi í gigtarlækningum árið 1982 eftir að hafa lokið stúdentsprófi frá MR árið 1969, kandídatsprófi frá læknadeild HÍ árið 1976. Sérfræðinám stundaði hann í Svíþjóð.

Árni lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“