
Þann 15. maí síðastliðinn hlaut Reykvíkingur fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ryðjast í heimildarleysi inn í hjólhýsi í borginni, en atvikið átti sér stað fyrir rétt rúmu ári síðan.
Ákæran varðar húsbrot og játaði maðurinn sök. Var hann því sakfelldur samkvæmt ákæru. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn hefur oft gerst brotlegur við lög og var á skilorði vegna fyrri brota er hann ruddist inn í hjólhýsið. Hann hefur meðal annars hlotið dóm fyrir líkamsárás og brot gegn valdstjórninni, sem og fíkniefnalagabrot.
Niðurstaðan var sú að hann var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi. Dómurinn er ekki skilorðsbundinn og þarf hann því að sitja hann af sér.