fbpx
Þriðjudagur 16.júní 2026
Fréttir

Nota nýjustu tækni til að svíkja fé út úr Íslendingum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. maí 2026 15:47

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendir aðilar sem reyna að hafa fé út úr Íslendingum hafa gripið til þess ráðs að nota talgervla við svikin til að tala íslensku við þá sem verið er að reyna að svíkja fé út úr.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir að í lengri tíma hafi verið í gangi fjársvik þess eðlis að hringt sé í fólk og á línunni sé aðili sem segist vera frá Microsoft og að eitthvað sé að tölvu þess sem hringt sé í. Í framhaldinu sé viðkomandi leiddur í gegnum ferli við uppsetningu búnaðar í tölvu sinni sem geri brotamönnum kleift að komast yfir fjármuni hans. Nú hafi sú breyting orðið á þessum svikum að bæði sé hringt úr íslenskum símanúmerum og notaður talgervill í samskiptunum. Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi og íslenska sé töluð við þann sem reynt sé að svíkja.

Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

„Þá drep ég þig og þennan hund“

„Þá drep ég þig og þennan hund“
Fréttir
Í gær

Jón Pétur fékk þingmenn til að svara óvenjulegri könnun – „Mig langar bara að fólk fái gott í hjartað“

Jón Pétur fékk þingmenn til að svara óvenjulegri könnun – „Mig langar bara að fólk fái gott í hjartað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir Íslendinga sjálfa gera það sem þeir gagnrýni útlendinga fyrir – „Við erum sjálf „þetta fólk““

Segir Íslendinga sjálfa gera það sem þeir gagnrýni útlendinga fyrir – „Við erum sjálf „þetta fólk““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta fær nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar í laun

Þetta fær nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar í laun
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grét í heilan dag af vonbrigðum – „Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja“

Grét í heilan dag af vonbrigðum – „Ég er svo reið og mér er svo misboðið að ég veit varla hvar ég á að byrja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“