Hér er um laservopn að ræða, svona álíka og hægt er að sjá í Stjörnustríðsmyndunum. Vopnið skýtur skærum ljósgeisla frá sér sem hæfir skotmarkið og sprenging verður.
Bretarnir kalla vopnið DragonFire. Það átti upphaflega ekki að vera tilbúið til notkunar fyrr en 2032 en innrás Rússa í Úkraínu ýtti heldur betur við Bretum og þeir settu mikinn kraft í hönnun vopnsins og telja nú að það verði tilbúið 2027.
En það getur farið svo að Úkraínumenn fái það mjög fljótlega, jafnvel þótt það sé ekki alveg tilbúið. Grant Shapps, varnarmálaráðherra, sagði í samtali við BBC að vopnið þurfi ekki endilega að virka 100% áður en Úkraínumenn fá það. Það sé hægt að láta þeim það í té þótt það virki aðeins 70% af því sem fyrirhugað er. Úkraínumenn taki það í notkun og reynsla þeirra verði hluti af þróunarvinnunni við það.
Vopnið var prófað í janúar gegn flugskeytum og þykir framúrskarandi til að takast á við þau. Bretarnir segja að það geti hæft mynt, á stærð við 1 krónu, á eins kílómetra færi, það verður ekki uppiskroppa með skotfæri og hvert skot kostar aðeins sem svarar til tæplega 1.800 íslenskra króna á meðan hvert hefðbundið flugskeyti kostar sem svarar til tuga milljóna íslenskra króna.
Gallinn við það er að það er aðeins hægt að nota það gegn sýnilegum skotmörkum, það getur því ekki tekist á við skotmörk sem eru langt í burtu.