fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Manndráp og alvarlegir glæpir kvenna á Íslandi – „Ég læt ekki vaða yfir mig“

Auður Ösp
Sunnudaginn 14. apríl 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV heldur áfram umfjöllun um alvarlega glæpi framda af konum. Nokkuð sjaldgæft er að konur fremji alvarlega glæpi á Íslandi, svo sem manndráp, ofbeldisglæpi og kynferðisbrot. Undanfarna fimm áratugi hafa nokkrar konur komist í kastljós fjölmiðla í tengslum við alvarleg sakamál. Þetta eru sögur þeirra.

 

Nara Walker
Áströlsk kona sem beit tunguna úr eiginmanni sínum.

Beit tunguna úr eiginmanni sínum

Í mars í fyrra hlaut hin ástralska Nara Walker 12 mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás og stórfellt ofbeldisbrot í nánu sambandi en níu mánuðir voru skilorðsbundnir.

Nara var sakfelld fyrir að hafa veist með ofbeldi að eiginmanni sínum að kvöldi 9. nóvember 2017 og bíta í tungu hans þannig að hún fór í sundur. Þá var hún einnig sakfelld fyrir að hafa veist með ofbeldi að konu sem var gestur á heimili þeirra hjóna.

Nara og þáverandi eiginmaður hennar, sem er frá Frakklandi, fluttust til Íslands í október árið 2016 eftir að eiginmanni hennar bauðst tímabundið starf hér á landi. Nara var í ítarlegu viðtali við DV í mars í fyrra og ræddi sína hlið á málinu. Hún kvaðst sjálf vera fórnarlamb áralangs heimilisofbeldis af hálfu eiginmanns síns og lagði áherslu á að tungubitið hafi verið ósjálfráð viðbrögð í hita leiksins.

Sagði hún að eiginmaður hennar hefði beitt hana andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi í fjölmörg skipti og að fyrsta skiptið hefði verið nokkrum mánuðum eftir að samband þeirra hófst.

Frásögn Nöru af atburðum kvöldsins er á skjön við framburð eiginmanns hennar og hinnar konunnar. Umrætt kvöld voru Nara og eiginmaður úti að skemmta sér ásamt umræddri konu og bandarískum karlmanni og var síðan haldið heim til þeirra hjóna. Þar áttu sér stað átök sem leiddu til þess að Bandaríkjamaðurinn yfirgaf samkvæmið.

Hélt Nara því fram að eiginmaður hennar hefði byrlað henni kókaín þetta kvöld.

Í samtali við DV lýsti Nara atburðarásinni þannig að eiginmaður hennar hefði meinað henni að yfirgefa íbúðina, kýlt hana margsinnis og síðan komið með andlit sitt nær hennar þannig að hún varð dauðskelkuð. Sagðist hún hafa orðið „stjörf af hræðslu“ með andlit mannsins svo nærri hennar og þegar hann hafi reynt að kyssa hana þá hafi það gerst, að hún beit helminginn af tungu hans, í einum bita.

„Hann þvingaði tunguna upp í mig og þetta voru ósjálfráð viðbrögð. Ég var í áfalli.“

Þá bætti hún við á öðrum stað:

„Þegar lögreglan kom á staðinn þá benti maðurinn minn á mig og sagði: „Hún gerði þetta, hún gerði þetta,“ en ég reyndi að segja þeim að ég hefði orðið fyrir árás þetta kvöld, að hann hefði ráðist á mig. Þetta endaði samt þannig að maðurinn minn og konan voru flutt á slysadeild en ég var flutt á lögreglustöð, sett í fangaklefa í 15 klukkutíma og yfirheyrð. Ég var mjög ringluð yfir því af hverju ég var tekin en ekki hann.“

Nara sagðist jafnframt hafa staðið uppi heimilislaus og allslaus eftir atvikið. Sagði hún það hafa komið henni algjörlega í opna skjöldu að hljóta dóm vegna atviksins. „Það kom mér ekki á óvart að ég skyldi vera kærð, enda skil ég að eftir að einhver hlýtur áverka þá þarf að rannsaka það og komast að niðurstöðu. Ég bjóst samt alls ekki við að fá dóm, enda gerði ég ráð fyrir að það yrði tekið til greina ofbeldið sem ég var beitt áður en þetta átti sér stað.“

Mál Nöru rataði aftur í fjölmiðla í desember síðastliðnum þegar  Lands­rétt­ur þyngdi dóminn yfir henni úr árs fang­elsi í 18 mánuði, þar af 15 mánuði skil­orðsbundna. Hæstirétt­ur hafnaði í kjölfarið mál­skots­beiðni hennar. Blásið var til þögulla mótmæla fyrir utan fangelsið á Hólmsheiði þegar Nara mætti þangað til að hefja afplánun þann 20. febrúar síðastliðinn. Þá hafa vinir Nöru í heimalandi hennar blásið til undirskriftasöfnunar henni til stuðnings auk þess sem móðir hennar hefur skrifað bréf til íslenskra ráðamanna og farið fram á að dóttir hennar verði náðuð.

 

Ísafjarðar-Begga
DV 2. apríl 2005.

Kölluð Ísafjarðar-Begga

Þann 23. júlí árið 2000 varð Bergþóra Guðmundsdóttir manni að bana í íbúð að Leifsgötu 10 í Reykjavík. Bergþóra og Hallgrímur Elísson voru gestkomandi í íbúðinni og höfðu setið við drykkju ásamt húsráðanda og öðrum gesti. Á einhvern hátt tókst Hallgrími að reita Bergþóru til reiði og í kjölfarið kom til átaka  á milli þeirra.  Endaði það með því að Bergþóra réðst á Hallgrím þar sem hann lá á dýnu á gólfi íbúðarinnar og þrengdi að hálsi hans með þeim afleiðingum að hann lést.

Bergþóra hélt ávallt fram sakleysi sínu í málinu en framburður hennar við yfirheyrslur og fyrir dómi var þónokkuð breytilegur, og sama gilti um framburð annarra vitna í málinu. Þrátt fyrir það var talið óyggjandi að Bergþóra hefði banað Hallgrími þetta kvöld.

Héraðsdómur taldi að það hefði ekki verið ásetningur Bergþóru í upphafi að deyða Hallgrím en þar sem atlaga hennar gegn honum var svo ofsafengin þá leit dómurinn svo á að um hefði verið að ræða ásetningsverk, í lagalegum skilningi.

Þann 30. mars 2001 var Bergþóra dæmd til 14 ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hæstiréttur Íslands staðfesti dóminn í júní sama ár.

Bergþóra kom frá Ísafirði og hlaut síðar viðurnefnið Ísafjarðar-Begga. Í apríl 2005 birtist ítarlegt viðtal við Bergþóru í helgarblaði DV en þá var hún í Kvennafangelsinu í Kópavogi. Fram kom að líf hennar hefði ekki alltaf verið dans á rósum. Hún ólst upp við drykkju og óreglu og átti í erfiðleikum vegna ofvirkni og athyglisbrests, sem hún fékk aldrei greiningu á. Hún var ung þegar hún leiddist út í neyslu áfengis og fíkniefna og eignaðist tvö börn sem síðar var komið fyrir á fósturheimilum. Hún var svokölluð síbrotakona og komst stöðugt í kast við lögin.

Í viðtalinu kom fram að allt frá því að Bergþóra var smástelpa hefði hún lært að bíta frá́ sér ef að henni var sótt.

„Ég læt ekki vaða yfir mig og ef ég á nokkra möguleika á að verjast, geri ég það. Einn liðurinn í því er að vera ekki að skæla vegna örlaga minna.“

 

10 konur

Auk Bergþóru hafa frá árinu 1974 níu konur hlotið dóma fyrir manndráp hér á landi, þar af ein tvisvar sinnum.

Munda Pálín Enoksdóttir
Helgarpósturinn 24. maí 1984.

Munda Pálín Enoksdóttir varð kunningja sínum, Jóhannesi Þorvaldssyni, að bana á heimili sínu á Suðurlandsbraut þann 25. október 1974. Veitti hún honum áverka með hníf með því að skera hann á háls og stinga hann fyrir ofan viðbein og herðablað, og stuttu síðar réðst á hún á hann aftur með vasahníf og litlum skærum og stakk hann. Munda hafði áður verið vistuð á geðdeild en hún hafði tvisvar áður hlotið kæru fyrir að ráðast á fólk með eggvopni. Munda var ódæmd ósakhæf. Munda losnaði úr haldi árið 1985 en sex árum síðar, í febrúar 1991, stakk hún sambýlismann sinn Óskar Þórðarson til bana á heimili sínu í Reykjavík. Hún hringdi í kjölfarið á Kleppsspítala og játaði á sig verknaðinn. Hún var aftur talin ósakhæf vegna geðröskunar og var dæmd til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Hún eyddi ævinni meira og minna inni á stofnunum og síðustu árunum á réttargeðdeildinni að Sogni.

Í febrúar 1979 stakk Jenný Kristín Grettisdóttir eiginmann sinn, Árelíus Viggósson, til bana á heimili sínu við Skólavörðustíg í Reykjavík. Hjónin voru við það að skilja á þessum tíma en til átaka kom á milli þeirra eftir dansleik. Endaði það með því að Jenný Kristín greip hníf og stakk Árelíus í bringuna. Hún hringdi sjálf á sjúkrabíl í kjölfarið og viðurkenndi strax við yfirheyrslur hjá lögreglu að hafa stungið eiginmann sinn. Það hefði þó ekki verið ásetningur hennar að bana honum. Hún hlaut fimm ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur en Hæstiréttur þyngdi síðar dóminn í fimm og hálft ár.

Í janúar 1981 varð Björg Benjamínsdóttir eiginmanni sínum að bana með því að hella yfir hann bensíni þar sem hann lá í áfengisdauða, og bera síðan að honum eld. Björg hafði áður sent tvö ung börn þeirra á brott úr íbúð fjölskyldunnar í Kötlufelli í Breiðholti. „Kötlufellsmálið“ svokallaða varð umtalað í samfélaginu og vildu sumir meina að gjörðir Bjargar væru réttlætanlegar þar sem eiginmaður hennar hafði verið afar drykkfelldur og komið illa fram við hana. Björg var engu að síður talin sakhæf og hlaut 16 ára fangelsisdóm. Dómurinn var síðar mildaður í 14 ár.

Árið 1991 var 15 ára stúlka dæmd til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að hafa ásamt 17 ára pilti orðið Úlfari Úlfarssyni, 28 ára, að bana. Stúlkan lokkaði Úlfar með sér inn í húsasund þar sem pilturinn sló hann í höfuðið þannig að Úlfar féll. Höfuð hans skall utan í steintröppur með þeim afleiðingum að hann hlaut banvæna höfuðáverka.

Í janúar 1992 varð Jónína Sigríður Guðmundsdóttir sambýlismanni sínum, Hafsteini Smára Halldórssyni, að bana á heimili þeirra í Vestmannaeyjum. Jónína var þá tvítug að aldri. Höfðu þau setið við drykkju ásamt fleirum þegar til rifrildis kom á milli þeirra. Að lokum tók Jóna upp flökunarhníf og stakk Hafstein í í brjóstið. Hnífstungan var svo djúp að hnífurinn gekk inn að hjarta hans.

Jónína var talin hafa banað Hafsteini af ásettu ráði en það var metið til refsilækkunar að hún var ung að aldri og framdi verknaðinn í mikilli reiði og geðshræringu. Hún hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í héraðsdómi en Hæstiréttur þyngdi síðan dóminn í sex ár.

Í október 2002 var Sigurhanna Vilhjálmsdóttir dæmd fyrir að stinga sambýlismann sinn, Steindór Kristinsson, í bringu og kvið með þeim afleiðingum að hann lést 18 dögum síðar.

Verknaðurinn var framinn í ölæði og kom fram við réttarhöldin að Steindór hefði beitt Sigurhönnu ofbeldi fyrr um kvöldið. Hún hlaut að lokum átta ára fangelsisdóm.

Árið 2004 varð Hildur Árdís Sigurðardóttir 12 ára gamalli dóttur sinni að bana með því að stinga hana margsinnis. Þá veittist hún einnig að eldri syni sínum með hníf og veitti sjálfri sér áverka. Eldri syni hennar tókst við illan leik að flýja út úr íbúðinni og hringja á lögreglu. Hildur hafði lengi glímt við alvarleg, geðræn veikindi. Hún var dæmd ósakhæf og gert að sæta öryggisgæslu á réttargeðdeildinni að Sogni.

Agné Krataviciuté
DV 23. maí 2012.

Í júlí 2011 fæddi hin litháenska Agné Krataviciuté sveinbarn á hótelherbergi á Hótel Fróni í Reykjavík. Hún veitti litla drengnum því næst skurðáverka og þrengdi síðan að hálsi hann þar til hann lést. Agné var þá 22 ára gömul og starfaði sem hótelþerna á hótelinu. Barnið fannst skömmu síðar í ruslagámi. Málsvörn Agné fyrir héraðsdómi byggði meðal annars á því að and­legt og lík­am­legt ástand hennar hefði verið slíkt eft­ir óvænta fæðingu barnsins að hún hefði enga stjórn haft á gjörðum sín­um eða vitneskju. Hún hefði ekki áttað sig á því að hún væri þunguð og fæðingin hefði reynst henni gífurlegt áfall. Agné neitaði ætíð sök í málinu. Hún hlaut tveggja ára fangelsi í héraði en Hæstiréttur þyngdi síðar dóminn um eitt ár.

Þá varð hin pólska Danuta Kaliszewska sambýlismanni sínum að bana á heimili í Hafnarfirði í febrúar 2015.  Stakk hún sambýlismann sinn, sem einnig var pólskur, í hægri hlið líkamans þannig að hnífurinn gekk inn í hægra lunga hans og blæddi úr lunganu með þeim afleiðingum að hann lést. Bæði voru þau í annarlegu ástandi. Danuta neitaði sök í málinu en geðlæknir sem bar vitni fyrir dómi sagði Danutu ekki eiga við geðræn vandamál að stríða, né væri hún siðblind. Hún var að lokum dæmd í 16 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala