fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Ólafur Gottskálksson fluttur í skyndi af Vogi á Landspítalann: Brotið rifbein og innvortis blæðingar

Ritstjórn DV
Mánudaginn 8. ágúst 2016 15:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Gottskálksson fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu sem fór í áfengismeðferð á Vogi þann 4. ágúst á Vogi var fluttur í skyndi á Landspítalann á laugardag. Ástæða innlagnarinnar var innvortis blæðingar og brotið rifbein sem að hann segir að séu eftir átök við lögreglu. Stundin greinir frá þessu sem birtir einnig myndir af áverkunum. Lögreglan á Suðurnesjum vildi lítið láta hafa eftir sér um málið þegar eftir því var óskað af blaðamanni DV. Í umfjöllun DV fyrr í vikunni kom fram að Ólafur væri á leið í meðferð en þá ákvörðun tók hann eftir að hann var handtekinn fyrir framan fimm ára son sinn eftir að hafa ekið með hann undir áhrifum áfengis.

Fíknin náði yfirhöndinni

Ólafur var atvinnumaður í knattspyrnu um skamma hríð og á nokkra landsleiki að baki. Fíknin náði svo tökum á honum og hefur hann barist við hana um margra ára skeið. Ástæða þess að Ólafur ákvað að leita sér hjálpar var eftir að hafa ekið undir áhrifum með fimm ára son sinn og neitað að stöðva fyrir lögreglu. Um það atvik sagði Ólafur í samtali við Bítið á Bylgjunni:

Sjá hér: handtekinn fyrir framan 5 ára son sinn

„Það sem gerist er að konan mín vinnur vaktavinnu og kemur heim á sunnudagskvöldi, þreytt eftir þriggja daga vinnu. Hún segir að ég þurfi að sjá um að koma syni okkar á leikskóla daginn eftir. Þennan morgun fer ég eitthvað að útrétta og sækja vörur og svona,“ sagði Ólafur en þegar hann kom heim til sín, um klukkan 10.30, voru börnin að leika sér og sonur Ólafs ekki enn farinn á leikskólann.

„Þá spyr hún hvort Þór (sonur Ólafs: innsk. Blm) sé ekki enn farinn í leikskólann. Ég segist vera að fara með hann en hún segir mér að gera það ekki,“ segir Ólafur en leikskólinn er í göngufæri frá heimilinu. „Ég tek drenginn með mér út í bíl og á leiðinni sér lögreglan mig. Hún var þá búin að fá tilkynningu um að ég gæti verið undir áhrifum. Þeir fylgdust með mér og ég var beðinn um að stöðva. Ég tók þá afdrifaríku ákvörðun að stöðva ekki. Ég næ því ekki enn í dag.“

Ólafur sagði einnig að hann hefði ekki ekið með börnin sín undir áhrifum áður. Það endaði síðan með því að lögreglan ók utan í bíl hans til að stöðva för hans í íbúðarhverfi en taldi lögreglan að hætta væri á ferðum.

„Ég vildi bara komast heim og þeir handtóku mig fyrir utan heimilið mitt,“ sagði Ólafur sem var handtekinn fyrir framan fimm ára son sinn. Ólafur bætti við að hann hefði ákveðið að leita sér strax hjálpar. Hann hafði samband við SÁÁ og óskaði eftir plássi á Vogi. Þangað fór hann svo þann 4. ágúst.

Saka lögreglu um harðræði

Það var 25. júlí síðastliðinn sem lögreglan stöðvaði för Ólafs sem ók eins og áður segir undir áhrifum. Ólafur neitaði að stöðva og ók lögregla utan í bíl hans og voru báðar bifreiðarnar illa farnar. Í frétt Stundarinnar segir að þeir sem standi Ólafi næst saki lögregluna á Suðurnesjum um óþarfa harðræði og kylfur hafi verið notaðar fyrir og eftir að búið var að koma Ólafi í handjárn. Þá segir að til sé myndskeið af handtökunni og börn Ólafs hafi orðið vitni að henni. Inni á Vogi kom svo í ljós að afleiðingarnar hafi verið brotið rifbein og innvortis blæðingar í kringum nýru en töluverða áverka er að sjá á Ólafi á þeim myndum sem Stundin birtir.

Lögreglan neitar að tjá sig

DV hafði samband við lögregluna á Suðurnesjum sem vildi lítið tjá sig um málið að svo stöddu. Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum sagði:

„Ég ætla ekki að ræða mál Ólafs Gottskálkssonar. Líkt og starfsreglur okkar segja til um þá get ég ekki rætt málefni hans neitt sérstaklega. Málið er hér til rannsóknar og ég get ekki sagt meira.“

Nánar er fjallað um málið á Stundinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Nefnir þrjú dæmi um „þráláta þrjóskuheimsku“ Íslendinga – „Með dassi af sérhagsmunum og popúlískri pólitískri froðu“

Nefnir þrjú dæmi um „þráláta þrjóskuheimsku“ Íslendinga – „Með dassi af sérhagsmunum og popúlískri pólitískri froðu“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Í gær

Tíu ára stúlka á meðal látinna í hræðilegu skrímslatrukkaslysi

Tíu ára stúlka á meðal látinna í hræðilegu skrímslatrukkaslysi
Fréttir
Í gær

Fjölgun opinberra starfsmanna – Fjölgunin mest hjá sveitarfélögunum en ríkið bætir við heilbrigðisstarfsfólki

Fjölgun opinberra starfsmanna – Fjölgunin mest hjá sveitarfélögunum en ríkið bætir við heilbrigðisstarfsfólki
Fréttir
Í gær

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður í Reykjanesbæ ákærður fyrir hrottalega hnífsárás á konu

Maður í Reykjanesbæ ákærður fyrir hrottalega hnífsárás á konu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Moldríkur safaríveiðimaður traðkaður til dauða af fílum – Lýst sem „náttúruverndarsinna“ og „góðum gaur“

Moldríkur safaríveiðimaður traðkaður til dauða af fílum – Lýst sem „náttúruverndarsinna“ og „góðum gaur“