fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 3. maí 2026 13:30

Orri Björnsson. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er mikilvægt að átta sig á því að útlendingar sem flytja til Íslands, langflestir eru komnir hingað til að vinna og bæta sitt líf. Rífa sig upp frá sínu heimalandi til að bæta sína stöðu og vinna sig áfram í lífinu, það er mikilvægt að við áttum okkur á því. Það er líka mikilvægt að við áttum okkur á því að þeir eru í þeim störfum sem eru mestar sveiflur í. Það eru miklu fleiri Íslendingar hlutfallslega í vinnu hjá ríki og bæ í öruggum störfum. Kennurum er ekki sagt upp þó komi kreppa í byggingariðnaði eða ferðaþjónustu. En útlendingarnir sem manna þessar greinar svo mikið þeir missa vinnuna og fara á bætur. Það er eðlilegt að sé hlutfallslega meira af útlendingum á atvinnuleysisbótakerfinu og slíku vegna þess að þeir eru í þessum störfum,“

segir Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, sem er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni.

„Hverjir sitja helst í fangelsum? Það eru karlar á aldrinum 20-45, 50 ára gamlir og þar er hlutfall útlendinga miklu hærra. Hlutföllin eru ekki eins í öllum aldursflokkum og ekki heldur milli kynja. Við getum sagt að hlutfallið sé vissulega hátt, en það eru vissar skýringar á þessu stundum.

Ég er meðvitaður um að það eru vandamál, en það væru meira vandamál ef það væru engir útlendingar sem byggju á landinu og ynnu okkar störf sem við viljum ekki vinna lengur. Það væri miklu meira vandamál. Það er annað sem við þurfum að ná að gera, það er að aðgreina umræðu um útlendinga og hælisleitendur.“

Segir hann ekkert óeðlilegt að útlendingar flytji hingað og vilji búa hér.

„Við erum bara gott samfélag sem fólk vill búa í, taka þátt í og vera hluti af. Það er bara staðreynd að Ísland er eitt af bestu löndum í heimi. Það er auðvitað gæðamerki fyrir okkur. Við þurfum hins vegar að gæta þess að fólk sem komi hingað aðlagist sem mest, það fari ekki að mynda sérmengi og sérhópa. Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu.

Segist hann ekki hafa áhyggjur af því að innflytjendur verði fjölmennari en Íslendingar. Segir hann þurfa að taka vel á móti innflytjendum, sérstaklega börnum sem koma til landsins og fæðast á landinu, þannig verði þau hratt Íslendingar bara með öðruvísi ættarnafn.“

Orri ræðir einnig áherslur sínar í bæjarstjórn en hann vill meðal annars breyta íþróttahúsinu við Strandgötu í menningarhús, hann vill að samningur um vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins verði afnuminn og segir galið að Reykjavík geti hindrað Hafnarfjörð í að skipuleggja ný uppbyggingarsvæði. Þá vill hann einnig að framkvæmdum við Reykjanesbraut hjá Kaplakrika verði flýtt þar sem byggð verði göng til að leysa mikið ófremdarástand sem þar ríkir í dag.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“