fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026
Fréttir

Odee storkar bannfýsn skólans síns – Elsa úr Frozen, Rómeó og Júlía, Moby Dick og David Bowie á bannlista

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. maí 2026 14:30

Oddur Eysteinn Friðriksson betur þekktur sem Odee.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndlistarmaðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson, sem er þekktur undir listamannsnafninu Odee, hefur vakið töluverða athygli fyrir rimmu sína við útgerðarfyrirtækið Samherja. Odee segir nú frá því á samfélagsmiðlum að hann berjist gegn ritskoðun og banni við kynjafræði og að ýmis viðfangsefni, meðal annars sögufræg bókmenntaverk og tónlistarmenn séu rannsökuð, við háskóla í Texas þar sem hann stundar doktorsnám og starfar sem aðstoðarkennari.

Eins og DV og fleiri fjölmiðlar hafa fjallað um lenti Odee í töluverðri rimmu við Samherja vegna lokaverkefnis síns við Listaháskóla Íslands en það fólst í að setja upp heimasíðu í nafni fyrirtækisins með afsökunarbeiðni á ensku. Samherji stefndi Odee fyrir dóm í Bretlandi, fyrir brot á vörumerkjarétti, þar sem síðan var skráð þar í landi. Var Samherja dæmt í vil.

Samherji leggur listamann í bresku dómsmáli – Villti á sér heimildir og baðst afsökunar

Odee stundar nú doktorsnám og starfar sem aðstoðarkennari við Texas Tech University í borginni Lubbock í norðurhluta Texas í Bandaríkjunum.

Bannað

Í Facebook-færslu sem hann skrifar á íslensku, að eigin sögn til að vekja athygli á stöðu mála í skólanum segir Odee að skólayfirvöld hafi bannað kynjafræði og lokað deildum innan skólans. Einnig sé bannað að kenna málefni sem tengjast kynjafræði á nokkurn hátt eða hafa eitthvað að gera með kynhneigð.

Í þokkabót hafi nú nýlega verið settar reglur um hvað nemendur megi rannsaka, eða skapa.

Til dæmis séu teiknimyndapersónan Elsa úr Frozen, leikritið Rómeó og Júlía, skáldsagan Moby Dick og  tónlistamaðurinn David Bowie á bannlista skólans. Þetta séu hins vegar aðeins örfá dæmi um það sem sé bannað í skólanum:

„Fólk þorir ekki að stíga fram og mótmæla vegna þess að menntun þeirra eða störf verða sett í hættu.“

Aðspurður í athugasemdum um hvers vegnar verið sé að setja þetta sem hann nefnir á bannlista segir Odee um Elsu og Rómeó og Júlíu:

„Þeir telja þessar bókmenntir kynda undir samkynhneigð, og Elsa er kvenhetja sem er ekki við karlmann kennd… og hefur þessvegna verið tengd við hinsegin samfélagið. Þetta eru skýringar sem okkur voru gefin á starfsmannafundi.“

Mótmæli

Odee segist sjálfur hafa mótmælt þessari skerðingu á tjáningarfrelsi og mannréttindabrotum með því að varpa regnboga á þekkt kennileiti á háskólasvæðinu, og David Bowie á einkennismerki skólans.

Lætur hann fylgja með tengil á færslu á Instagram þar sem einmitt má sjá myndbandi af David Bowie varpað á einkennismerki skólans.

Sú færsla er skrifuð á ensku og þar segir meðal annars að skólayfirvöld viðhafi ritskoðun og framferði þeirra brjóti gegn tjáningarfrelsi, akademísku frelsi og réttindum hinsegin fólks.

Í athugasemdum fá þessi mótmæli Odee góðar viðtökur frá meðal annars fyrrverandi nemendum við skólann.

Eins og hins vegar hefur komið fram í fréttum eru þó nokkur dæmi um að ríkisstjórn Donald Trump Bandaríkjaforseta taki illa í að erlendir háskólanemar í landinu viðhafi mótmæli gegn stefnu yfirvalda og sumum þeirra hefur í kjölfarið verið vísað úr landi. Hvort mótmælin eiga eftir að hafa einhverjar afleiðingar fyrir hinn íslenska myndlistarmann og háskólanema á eftir að koma í ljós.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by ODEE (@odeeart)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Egill spáir því að þessir flokkar myndi meirihluta eftir kosningar

Egill spáir því að þessir flokkar myndi meirihluta eftir kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu