fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Dæmi um að gististaðir aflýsi gistingum ferðamanna á sólmyrkvanum og auglýsi aftur á margföldu verði – „Algjörlega klikkað“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 4. maí 2026 11:30

Ferðamenn kvarta yfir græðgi Íslendinga á sólmyrkvanum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendur ferðamaður sem pantaði gistingu á Íslandi þann 12. ágúst næstkomandi, þegar sólmyrkvinn mikli skellur á, fyrir löngu síðan lenti í því af gistingunni var aflýst og svo auglýst aftur á margföldu verði.

„Ég bókaði ferð mína til Íslands fyrir einu og hálfu ári til að sjá sólmyrkvann… nú er verið að aflýsa öllu,“ segir erlendur ferðamaður í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.

„Ófyrirséðar aðstæður“

Eins og flestir vita mun almyrkvi sólu sjást vestast á Íslandi þann 12. ágúst næstkomandi. Það er á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu ef veður leyfir. Mikil ásókn hefur verið í gistingu og ferðir til Íslands á þessum tíma þar sem fólk vill sjá þetta mikla sjónarspil á himninum.

Hér gildir lögmálið um framboð og eftirspurn og hefur verð á gistingu á þessum tíma rokið upp úr öllu valdi. En nú eru komin upp dæmi um að gististaðir séu að aflýsa herbergjum ferðamanna sem pöntuðu á mun lægra verði fyrir löngu síðan til þess að geta rukkað meira.

„Ég planaði þessa ferð með miklum fyrirvara sérstaklega út af sólmyrkvanum. Ég bókaði camper bíl, hótel og airbnb (til vara) fyrir meira en einu og hálfu ári síðan, festi dagsetningarnar og hélt að ég væri í góðum málum,“ segir ferðamaðurinn ósátti. „Spólum áfram til dagsins í dag og nú er gististaðurinn að aflýsa og vitna í „ófyrirséðar aðstæður.“ Tímasetningin passar nákvæmlega við sólmyrkvann.“

Skuggaleg hegðun

Hafði bæði airbnb íbúðinni og camper bílnum verið aflýst. Þrátt fyrir þessa aflýsingu hafði skyndilega losnað rými hjá sama gististað. En nú á margföldu verði.

Sjá einnig:

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

„Ég athugaði verðið af forvitni og þetta er algjörlega klikkað. Það sem ég bókaði á sínum tíma er nú auglýst á margföldu verðinu sem ég átti að borga, ef það er yfir höfuð hægt að panta núna,“ segir hann. „Ég skil það að verðið hækki þegar stórir atburðir eru í gangi en að aflýsa gömlum pöntunum til þess að geta auglýst aftur á mun hærra verði finnst mér vera ansi skuggalegt.“

Íbúð sögð ónýt

Kom í ljós að þessi ferðamaður er alls ekki sá eini sem hefur lent í þessu. Einkum á þetta við um airbnb íbúðir.

„Þetta kom fyrir okkur líka. Við bókuðum airbnb fyrir einu og hálfu ári og þeir aflýstu fyrir tveimur vikum,“ segir einn í athugasemdum.

„Þetta kom fyrir mig á sólmyrkvanum árið 2017. Við pöntuðum airbnb með árs fyrirvara. Mánuði áður en við áttum að mæta fékk ég skilaboð frá eigandanum sem ég bjóst við að væri til að klára málið en þá sagði hann að íbúðin væri „ónýt“. Ég endaði á að þurfa að panta hótelherbergi á 500 dollara [innsk: 62 þúsund krónur]. Ég hef ekki pantað airbnb síðan þá,“ segir annar.

Þá hafa ferðamenn einnig lent í því að hótel aflýsi ferðum.

„Hótelið okkar var að aflýsa! Og við höfum ekki fundið neitt annað á eðlilegu verði í staðinn,“ segir einn ósáttur ferðamaður.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð