fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. maí 2026 06:00

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo gæti farið að við tilteknar aðstæður verði frönskum kjarnorkuvopnum komið fyrir á sænskri grund.

Þetta kemur fram í umfjöllun SVT, sænska ríkissjónvarpsins.

Fyrsti fundur á milli yfirvalda í Frakklandi og Svíþjóð um áætlanir um fælingarmátt Evrópuríkja, með kjarnorkuvopnum, hefur átt sér stað. Frakkar áttu frumkvæðið að umræddri áætlun en hún er sögð viðbrögð við aukinni tortryggni og tregðu Bandaríkjanna gagnvart samstarfi á vegum NATO og auknum efasemdum um að Bandaríkin muni gera nokkuð til að koma öðrum NATO-ríkjum til hjálpar á stríðstímum.

Hvað umrædd áætlun mun fela í sér er þó enn óljóst.

Fundurinn átti sér stað í París í síðasta mánuði.

Sænskir sérfræðingar tjá SVT að mögulega muni þessar áætlanir hafa í för með sér aukna samvinnu milli ríkjanna um heræfingar sem feli í sér undirbúning og þjálfun við að verja franskar herflugvélar sem geti borið kjarnorkuvopn. Mögulegt sé einnig að hluti af þessum áætlunum verði að slíkar flugvélar gætu verið staðsetttar í Svíþjóð tímabundið t.d. ef aðstæður skapist í öryggismálum sem krefjist slíks viðbúnaðar. Til að mynda ef Svíþjóð verði ógnað með kjarnorkuvopnum.

Friður

Sérfræðingarnir minna á að ákvörðun um að koma fyrir kjarnorkuvopnum á sænskri grund verði alltaf á endanum tekin af stjórnmálamönnum. Sænska þingið leyfir ekki slíkt á friðartímum en sérfræðingarnir benda á staða öryggismála í heiminum hafi þróast þannig að það sé ekki lengur auðvelt að greina á milli friðar og stríðs en það geti varla talist svo að nú séu friðartímar.

Ef t.d. Rússar leggi aukinn þrýsting á Svíþjóð og önnu NATO-ríki geti mögulega orðið nauðsynlegt að frönsk kjarnorkuvopn verði á sænsku landsvæði.

Fimm af átta flokkum á sænska þinginu vilja að Svíþjóð taki þátt í áætluninni um fælingarmátt Evrópuríkjanna en fjórir þeirra styðja að á stríðstímum verði kjarnorkuvopnum komið fyrir í landinu. Ríkisstjórnarflokkarnir; Moderaterna, Frjálslyndir og Kristilegir demókratar auk stuðningsflokksins Svíþjóðardemókrata og Miðflokksins, sem er í stjórnarandstöðu, styðja þátttöku Svía í áætlun Frakka. Jafnaðarmenn lýsa efasemdum og vilja fremur halda sig við núgildandi varnaráætlanir NATO.

Stjórnarflokkarnir auk Svíþjóðardemókrata styðja að á stríðstímum heimili sænska stjórnvöld að kjarnorkuvopn verði staðsett í landinu en ekki á friðartímum en síðastnefndi flokkurinn útilokar það þó ekki. Miðflokkurinn og Jafnaðarmenn svara því ekki beint hvort þeir styðji að á stríðstímum verði kjarnorkuvopn í Svíþjóð.

Flokkarnir lengst til vinstri, Umhverfisflokkurinn og Vinstri flokkurinn, eru hins vegar alfarið á móti því að Svíþjóð komi í auknum mæli nálægt kjarnorkuvopnum.

Þingkosningar eru framundan í Svíþjóð í september og samkvæmt skoðanakönnunum nú myndi stjórnarandstaðan ná meirihluta á þingi sem ætti að þýða að vinstri stjórn undir forystu Jafnaðarmanna yrði mynduð þótt að það sé vel mögulegt að hin hefðbundna blokkaskipting í hægri og vinstri verði brotin upp. Verði vinstri stjórn mynduð virðist miðað við svör flokkanna ekki loku fyrir það skotið að möguleg þátttaka Svía í þessari áætlun Frakka verði endurskoðuð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn
Fréttir
Í gær

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar
Fréttir
Í gær

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur
Fréttir
Í gær

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag
Fréttir
Í gær

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“