fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Tíu ára stúlka á meðal látinna í hræðilegu skrímslatrukkaslysi

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 4. maí 2026 21:30

Borgarstjórinn heitir því að slysið verði rannsakað í þaula. Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír létust og tugir slösuðust í hræðilegu skrímslatrukkaslysi í Kólumbíu. Á meðal látinna er tíu ára gömul stúlka.

Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.

Slysið átti sér stað síðdegis á sunnudag í borginni Popayan í vesturhluta Kólumbíu. Mikill fjöldi fólks var þar saman kominn til að sjá skrímslatrukka, það er breytta jeppa á stórum dekkjum, keyra yfir alls konar hindranir.

Eins og sést í myndbandi sem náðist af slysinu þá keyrir einn bíllinn yfir hindranirnar en sveigir svo skyndilega til hægri og inn í áhorfendaskarann.

Áhorfendunum var mjög brugðið og reyndu að flýja en bíllinn var á allt of miklum hraða og ökumaðurinn, kona að nafni Sonia, virtist ekki hafa neina stjórn á bílnum. Öryggisveggurinn gerði lítið, bíllinn ók á tugi áhorfenda og hafnaði á rafmagnsstaur.

Fjöldahjálparstöð var opnuð og mikið viðbragð hjá öllum tiltækum aðilum sem gátu hjálpað, sjúkralið, lögregla og slökkvilið. Því miður létust 3 í slysinu, þar af 10 ára gömul stúlka sem var úrskurðuð látin á staðnum. Einnig slösuðust 38 manns, misalvarlega.

„Ég hef gefið út nákvæmar skipanir um ítarlega rannsókn þessa atviks,“ sagði Juan Carlos Munoz Bravo, borgarstjóri. „Þessir atburðir, sem áttu aldrei að geta gerst, munu verða skýrðir með fullu gagnsæi og þeir dregnir til ábyrgðar sem bera hana.“

Er meðal annars til skoðunar hvort að staðurinn hafi uppfyllt öll öryggisskilyrði, til að mynda varðandi öryggisveggi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Í gær

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“