fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Moldríkur safaríveiðimaður traðkaður til dauða af fílum – Lýst sem „náttúruverndarsinna“ og „góðum gaur“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 4. maí 2026 07:00

Fimm fílskýr tröðkuðu Dosio til bana.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Moldríkur bandarískur safaríveiðimaður var traðkaður til dauða af fílum í Gabon. Veiðimaðurinn hafði ógnað fílskýr með kálf og brást hjörðin illa við.

Blaðið New York Post greinir frá þessu.

Hinn látni veiðimaður hét Ernie Dosio og var 75 ára að aldrei. Aðstandendur lýsa honum sem vænum sveitapilti sem hafi elskað náttúruna. Dosio var reyndur safaríveiðimaður og hafði margsinnis veitt í Afríku.

Fimm kýr með kálf

Dosio var reyndar alls ekki að veiða fíla í þessari ferð, sem er talin hafa kostað 40 þúsund dollara. Eða um 5 milljónir króna. Hann var að leita að ákveðinni tegund hindar (duiker) sem þekktar eru fyrir að vera með gult bak. Var hann á veiðum ásamt leiðsögumanni sínum djúpt í frumskógum Afríkurríkisins Gabon, á vesturströnd álfunnar. En það var hjörð fíla sem traðkaði hann til dauða.

„Þegar þeir voru í skóginum mættu Ernie og leiðsögumaður hans fimm fílskúm með kálf,“ sagði annar safaríveiðimaður og góðvinur Dosio við New York Post. „Fílunum fannst þeim ógnað og réðust samstundis á þá.“

Dosio og leiðsögumaðurinn komust hvergi í burtu. Trjágróðurinn var svo þykkur. Þeir sáu ekki að fílarnir voru að ná þeim fyrr en allt of seint. En að kom veiðimönnunum mjög á óvart að finna fíla á þessum stað þrátt fyrir að í Gabon sé hægt að finna flesta villta fíla í heiminum.

Dauðinn kom fljótt

Fílarnir fleygðu leiðsögumanninum í burtu og tröðkuðu síðan á hinum aldna Dosio. Hann var vopnaður haglabyssu en það skipti engu. Hann hefði allt eins geta verið vopnaður vatnsbyssu gegn þessari hjörð.

„Ég vill helst ekki fara út í smáatriðin en það er hægt að álykta að dauðinn hafi komið fljótt,“ sagði vinurinn.

Uppstoppuð höfuð á heimili Dosio.

Leiðsögumaðurinn, sem var vopnaður riffli, lifði árásina af en hlaut alvarleg meiðsli. En hann var ráðinn í gegnum suður afrískt veiðifélag.

„Ernie hefur veitt síðan hann gat haldið á riffli og hefur fellt margan stórgripinn í Afríku og í Bandaríkjunum,“ sagði vinurinn. Sagði hann að Dosio hafi verið bæði vel þekktur og virtur. Hann hafi aldrei veitt nein án leyfis og hefði verið með allt sitt upp á tíu.

Náttúruverndarsinni og góður gaur

Dosio bjó í Kaliforníufylki og átti þar vínekru nálægt bænum Modesto. Á heimili hans mátti sjá uppstoppuð höfuð fíla, ljóna, buffala, nashyrninga, krókódíla, sebrahesta og hlébarða svo eitthvað sé nefnt.

„Hann var mikill náttúruverndarsinni og lét mikið af hendi rakna til góðgerðarmál, hann var mjög góður gaur,“ segir vinurinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð