fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. maí 2026 09:30

Grensásvegur 44-48 en kaffistofan á að vera í nr. 46. Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gísli Einarsson, læknir og íbúi í Breiðagerði, varar við nýrri staðsetningu Kaffistofu Samhjálpar í húsnæði við Grensásveg 46.

Miklar umræður og deilur hafa verið um áformin og margir íbúar í hverfinu lýst yfir áhyggjum af þessari staðsetningu kaffistofunnar vegna nálægðar við skóla og fjölmörg börn í hverfinu.

Sjá einnig: Uggandi yfir flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg – „Fólk er hrætt og vill bara fara að selja“

Gísli Einarsson segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að áhyggjur íbúa af kaffistofunni snúist ekki um samkennd enda hafi margir íbúar í hverfinu stutt við starfsemi Samhjálpar árum saman og vilji gera það áfram. En þeir gera alvarlegar athugasemdir við staðsetninguna. Gísli skrifar:

„Í kynningu Samhjálpar kemur fram að kaffistofan sé eingöngu ætluð fullorðnum og að þangað sæki meðal annars fólk sem glímir við fíknivanda og alvarleg andleg og líkamleg veikindi. Það vekur því spurningar að slík starfsemi sé fyrirhuguð í næsta nágrenni við tvo grunnskóla, Breiðagerðisskóla og Hvassaleitisskóla, þar sem samtals eru um 600 börn, í innan við 300 metra fjarlægð.

Mikil umferð barna er á þessu svæði, bæði milli skóla og til og frá heimilum. Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna í ljósi þeirrar starfsemi sem fyrirhuguð er á staðnum. Þessar áhyggjur eru raunverulegar og byggjast á aðstæðum sem ekki verður litið fram hjá.“

Hann rifjar upp að Umhverfis- og skipulagsráð hafi samþykkt breytingarnar á húsnæðinu seint í mars, sem hefðbundið mál um veitingarekstur. Segir hann furðulegt að ekki hafi verið tekin umræða um þær fjölmörgu athugasemdir sem íbúar hafi sett fram. Málið snúist ekki um skipulagsmál heldur um áhrif á nærsamfélag og daglegt líf fjölskyldna á svæðinu. Hann segir:

„Ágreiningurinn snýst því ekki um vilja til að hjálpa heldur um hvernig best sé að gera það með hagsmuni allra í huga. Það er eðlilegt að leita lausna sem bæði tryggja mikilvæga þjónustu og taka tillit til öryggis og velferðar íbúa, ekki síst barna.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Dæmdur í fangelsi fyrir að ryðjast í heimildarleysi inn í hjólhýsi í Reykjavík

Dæmdur í fangelsi fyrir að ryðjast í heimildarleysi inn í hjólhýsi í Reykjavík
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sífellt fleiri ferðamenn telja Íslandsferðina ekki peningana virði

Sífellt fleiri ferðamenn telja Íslandsferðina ekki peningana virði
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ákærður fyrir stórhættulega hnífstunguárás fyrir utan Réttarholtsskóla

Ákærður fyrir stórhættulega hnífstunguárás fyrir utan Réttarholtsskóla
Fréttir
Í gær

Felldu tígrisdýr nálægt borginni Leipzig – Réðist á og stórslasaði aldraðan mann

Felldu tígrisdýr nálægt borginni Leipzig – Réðist á og stórslasaði aldraðan mann
Fréttir
Í gær

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“

Sakaði Icelandair um að standa sig ekki í stykkinu í kjölfar skellsins í október en hafði ekki erindi sem erfiði – „Smá snjófjúk“