fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Ísraelsmenn herja í auknum mæli á kristið fólk og stofnanir – Ráðist á nunnu í Jerúsalem

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 4. maí 2026 13:00

Árásin á nunnuna var algjörlega tilhæfulaus. Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árásum Ísraelsmanna á kristna á herteknum svæðum í Líbanon fer fjölgandi. Þá er hatur gegn kristnum einnig á uppleið í Ísrael. Nýlega var ráðist á franska nunnu í Jerúsalem.

Hatur á kristnu fólki virðist vera á uppleið í Ísrael, bæði innan hersins og á meðal almennra borgara. Ráðist hefur verið á kristið fólk og kristnar táknmyndir að undanförnu.

Síðastliðinn þriðjudag, þann 28. apríl, var ráðist á franska nunnu í Jerúsalem. 36 ára ísraelskur maður hefur verið handtekinn fyrir hina tilhæfulausu árás.

Hélt hún myndi deyja

Eins og sést á öryggismyndavélum hrindir hann nunnunni sem fellur í gangstéttina, hrópa ókvæðisorðum að henni og sparkar svo í hana þar sem hún er enn þá liggjandi eftir fallið.

Nunnan er af reglu dóminíkana og starfar sem vísindamaður við Biblíu og fornleifafræðiskólann í Jerúsalem. Eins og segir í umfjöllun sjónvarpsstöðvarinnar France 24 um málið þá er nunnan ekki mjög alvarlega slösuð á líkama en er í losti eftir árásina sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.

Sjá einnig:

Ísraelar eyðileggja trúartákn kristinna manna – Prestur segir þetta ekki í fyrsta sinn

Rektor skólans, Olivier Poquillon, segir að hún hafi haldið að hún myndi deyja, árásin var svo ofbeldisfull. Hefði ekki verið stigið inn í hefði farið enn verr.

Gyðinglegir öfgamenn

Árásin er talin vera til marks um aukna hörku gyðinglegra öfgamanna. Ljóst er að þeir beita sér bæði gegn múslimum og kristnu fólki. Árásin á nunnuna er ekki einsdæmi.

Ísraelsmenn eyðileggja líkneski Jésú í bænum Debel.

Á undanförnum árum hefur verið ráðist að nunnum, pílagrímum og öðrum sem bera kristin tákn. Einnig að kirkjum og öðrum kristnum byggingum. Árið 2025 voru atvikin skráð 181 talsins, þar af tugir líkamsárása.

Eyðilögðu klaustur

Þetta andrúmsloft haturs sést glöggt í hegðun ísraelskra hermanna á hernumdum svæðum í suðurhluta Líbanon. En um þriðjungur Líbana eru kristnir.

Fyrir um tveimur vikum síðan var greint frá því að ísraelskir hermenn hefðu eyðilagt líkneski af Jésú Kristi við heimili í bænum Debel, austast á hernumdu svæðunum í Líbanon.

Ísraelsher sagðist ekki sjá nein merki um að byggingin væri klaustur.

Sú árás er heldur ekki einangrað tilvik því að fleiri koma sífellt upp. Á laugardag, 2. maí, var greint frá því að ísraelskir hermenn hefðu eyðilagt klaustur í bænum Yaroun. Um er að ræða grískt nunnuklaustur af reglu Salvator.

Ísraelsher hefur viðurkennt að hafa skemmt klaustrið. Er því haldið fram að Hezbollah hefðu notað staðinn til að fremja árásir frá og að engin merki væri um að þetta væri klaustur eða trúarleg bygging.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð