fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Íslendingur stefnir rússneskri eiginkonu til lögskilnaðar eftir að hún flutti frá honum til Rússlands

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 4. maí 2026 16:00

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur maður, rúmlega þrítugur, hefur stefnt rússneskri eiginkonu sinni, sem er 23 ára, til lögskilnaðar. Til vara krefst hann skilnaðar að borði og sæng.

Stefna íslenska mannsins í málinu er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta stefnuna eiginkonu hans.

Þar kemur fram að fólkið var gefið saman hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu seint í apríl árið 2024, eftir stutt samband. Í júlí sama ár flutti konan fyrirvaralaust til Rússlands og sleit þar með samvistum við manninnn.

„Lagði stefnandi fram beiðni um skilnað hjá Sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu þann 4. febrúar 2026. Allar samningaviðræður við stefndu hafa reynst árangurslausar. Þá hefur stefnda neitað að mæta til Sýslumanns og neitar þannig að láta sig málið varða. Sýslumaður vísaði því frá beiðni hans um lögskilnað þann 18. mars 2026,“ segir í stefnunni.

Maðurinn krefst skilnaðar á grundvelli 37. greinar hjúskaparlaga, þar sem segir að hafi hjón slitið samvistir vegna ósamlyndis geti hvort þeirra krafist lögskilnaðar þegar samvistaslit hafa staðið yfir í eitt ár hið minnsta. Bendir hann á að meira en ár er liðið frá því konan sleit samvistum við hann og flutti til Rússlands.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 11. júní næstkomandi. Konunni er birt fyrirkall og henni stefnt til að mæta við þingfestinguna. Geri hún það ekki má búast við að útivistardómur gangi í málinu, sem þýðir að dómur verður kveðinn upp án þátttöku hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð