fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fókus

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu

Fókus
Mánudaginn 1. júní 2026 11:57

Karen Kjartansdóttir almannatengill og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Samsett mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Segja má að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hafi brætt ótal hjörtu með því að birta mynd af sér með nýjan hvolp.

„Ég er yfirleitt feiminn við að vera á persónulegu nótunum en einstaka sinnum koma dagar sem þróast þannig að það verður freistandi að segja frá því,” segir hann í færslu á Facebook.

„Eftir allan hamaganginn vegna sveitarstj.kosninga og ESB umsóknar og eftir síðustu skyldur sem fylgdu þeirri orrahríð, í bili, hélt ég heim á leið.

Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist (þrátt fyrir smávægilegar efasemdir áður en hann mætti).”

Dagur Sigmundar varð enn betri þegar í ljós kom að í kvöldmatinn var lambalund og dóttir hans lagði til að horfa á sjónvarpsþættina sígildu um Sopranos fjölskylduna.

Flestar athugasemdir hafa verið á fallegu nótunum enda fullt tilefni til, við það bætast aðdáendur Sopranos.

Hundurinn eigi að vera íslenskur fjárhundur

Karen Kjartansdóttir, almannatengill hjá Veðurstofunni, gerir færslu Sigmundar að umfjöllunarefni í sinni færslu á Facebook, hún sé með eðlilega, málefnalega og öfgalausa kröfu: „Leiðtogi þjóðernisíhalds á Íslandi á að eiga íslenskan fjárhund. Ekki einhverja alþjóðlega stofutísku með mjúkan feld og evrópska og kúbverska tengingu.”

Hundurinn eigi að vera íslenskur fjárhundur, punktur. „Það gengur ekki að tala um þjóðlega sérstöðu, fullveldi og íslenska menningararfleifð og koma svo heim í lambalund, kartöflur, Sopranos og innfluttan hvolp. Það er bara Schengen með brúnni aldamótasósu,“ segir hún.

„Ég geri ekki margar kröfur. En ef íslenski fjárhundurinn er ekki nógu þjóðlegur fyrir stofu Sigmundar vinar míns, þá er fullveldið greinilega tollfrjálst og bara fyrir ræðupúltið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax
Fókus
Fyrir 2 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök
Fókus
Fyrir 5 dögum

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ævintýraprinsinn Björgvin: „Hann öðlaðist vængi sem hann sveif á í marga áratugi“

Ævintýraprinsinn Björgvin: „Hann öðlaðist vængi sem hann sveif á í marga áratugi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Reiður vegfarandi hellti sér yfir Helen Mirren í London – Sjáðu myndbandið

Reiður vegfarandi hellti sér yfir Helen Mirren í London – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína