fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fókus

Lokuðu Instagram reikningi þekktasta áhrifavalds Bretlands – Sökuð um að flassa brjóstunum

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 2. júní 2026 16:30

Price óttast um fylgjendurnar sínar. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Katie Price er bandill eftir að Instagram reikningi hennar var lokað. Ástæðan var sögð sú að hún hafi flassað brjóstunum í myndefni þar og auglýst CBD gúmmí.

Eins og segir í frétt The Sun er hin 48 ára Price sótill eftir að Instagram lokaði reikningnum hennar. Hún hafi þar með tapað 2,6 milljónum fylgjenda.

Meta, eigandi Instagram, lokaði reikningnum hennar vegna kvartana frá fólki sem sagði hana hafa flassað brjóstunum og auglýst CBD gúmmí, það er sælgæti með kannabisolíu. Price kvartaði yfir þessu og málið er nú til rannsóknar hjá Meta.

Á meðan þá óttast Price um að ná ekki að endurheimta gamla reikninginn sinn og fylgjendurnar að fullu til baka.

„Henni var upphaflega sagt að hún myndi fá reikninginn sinn til baka en nú eru þeir að segja að hún gæti þurft að byrja upp á nýtt með enga fylgjendur,“ segir heimildarmaður The Sun.

Málið kemur á viðkvæmum tíma í lífi Price. En reikningnum var lokað nokkrum klukkustundum eftir að Price tilkynnti að hún og eiginmaður hennar, kaupsýslumaðurinn Lee Andrews, hefðu náð að tala saman. En Andrews var handtekinn og fangelsaður í Dubai fyrir skemmstu.

Málið er hjúpað dulúð og en að sögn Price er Andrews sakaður um njósnir. En fyrir handtökuna hafði hann verið týndur í um tvær vikur. Hélt Price því fram að manni sínum hefði verið rænt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax
Fókus
Fyrir 2 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök
Fókus
Fyrir 5 dögum

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ævintýraprinsinn Björgvin: „Hann öðlaðist vængi sem hann sveif á í marga áratugi“

Ævintýraprinsinn Björgvin: „Hann öðlaðist vængi sem hann sveif á í marga áratugi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Reiður vegfarandi hellti sér yfir Helen Mirren í London – Sjáðu myndbandið

Reiður vegfarandi hellti sér yfir Helen Mirren í London – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína