fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fókus

„Þetta er orðið eitt það skemmtilegasta við allt þetta brölt“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 28. maí 2026 17:30

Kristján Kristjánsson, KK

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, KK, hefur verið að fagna sjötíu ára afmæli með tónleikum víða um land og mun halda því áfram út þetta ár. Hann segir þó að tónleikarnir séu í grunninn ekkert svo frábrugðnir því sem hann hefur verið að gera síðustu ár. „Ég er alltaf að spila þessi lög. Það hefur ekkert breyst mikið. Ég hef bætt við einu eða tveimur lögum,” segir KK í viðtali við hlaðvarpið Popparasögur.

KK fer yfir ferilinn í viðtalinu og segir meðal annars frá því hvernig það þróaðist að hann flutti frá Íslandi árið 1977 sem Chris á Frakkastígnum, eins og var talað um hann í kvikmyndinni Með allt á hreinu, og flutti til baka rúmum áratug síðar, þá sem tónlistarmaðurinn KK.

Hann byrjaði á því að buska, að spila á fjölförnum götum á Norðurlöndunum. „Og þá var til siðs að menn voru að gera kassettur og selja þær. Ég fór í stúdíó og tók upp nokkur lög og kallaði mig þá K.K. Sun,” segir KK og var nafnið tekið upp eftir tónlistarmanninum J.J. Cale.

Lífið í sirkus

Hann lýsir þessum tíma þegar hann bjó í Svíþjóð og starfaði sem tónlistarmaður sem einu eftirminnilegasta tímabili lífs síns. „Ég miða líka við mitt atvinnulíf sem tónlistarmaður, miðað við 1985,” segir KK en það árið byrjaði hann að buska, að spila á götunni.

„Við bjuggum saman með hinum buskerunum. Það voru ekki bara menn að spila á gítar og blús heldur voru líka jögglarar, eldgleypar, trúðar, látbragðsleikarar og menn sem gerðu alls konar hluti. Við bjuggum allir saman fyrir utan bæinn í svona kampi sem var eins og sirkus,“ rifjar hann upp.

Fjölskyldan ferðaðist um í gömlum húsbíl og börnin ólust upp innan samfélags götulistamanna. „Þetta var löng útilega og eitt eftirminnilegasta tímabilið fyrir börnin. Þau elskuðu þetta tímabil,“ segir KK.

Vegbúinn fyrsta lagið á íslensku

Eftir að fjölskyldan flutti aftur til Íslands hélt KK uppteknum hætti. Hann spilaði reglulega í borginni, sérstaklega á stöðunum Tveir vinir og annar í fríi og Púlsinum. Hann tók svo upp plötuna Lucky One árið 1991 sem hann vann með mági sínum Eyþóri Gunnarssyni sem meðal annars er tengdur við hljómsveitina Mezzoforte.

KK sagði einnig frá því hvernig eitt þekktasta lag hans, Vegbúi, varð til í tengslum við uppsetningu Kjartans Ragnarssonar á Þrúgum reiðinnar í Borgarleikhúsinu. Kjartan fór að sjá KK þegar sá síðarnefndi var að spila á Púlsinum. „Og í hléinu þá kemur Kjartan til mín og spyr hvort ég vilji gera tónlistina,” rifjar KK upp.

„Ég hef aldrei samið á íslensku, ég held ég geti það ekki,“ sagði KK þá við Kjartan. „Svo kom hann með textann og ég var ekki alveg nógu hrifinn af textanum svo ég reyndi að gera betur.“ Hann segir orðið „vegbúi“ hafi hann búið til út frá enska orðinu „vagabond“. „Mig langaði svo að búa til eitthvað orð sem væri svona eins og vagabond, svo ég bjó til orðið vegbúi,“ segir KK og þannig varð Vegbúi, eitt allra vinsælasta lag KK, fyrsta lagið sem hann samdi á íslensku.

Kristján Kristjánsson, KK

Samstarfið við Magga Eiríks

KK rifjaði einnig upp samstarf sitt við Magnús Eiríksson, sem hann segir einn mesta lagahöfund Íslands, en Magnús féll frá fyrr á þessu ári. „Ég hef alltaf vitað að Maggi er bestur. Besti lagahöfundurinn og textahöfundurinn. Langbestur,“ segir Kristján. Leiðir þeirra lágu saman þegar KK var ungur maður að byrja að spila á gítar.

Þeir félagar gáfu meðal annars út nokkrar ferðalagaplötur, plötur með gömlum ferðalögum og rútubílasöngvum. KK viðurkennir að hann hafi upphaflega haft fordóma gagnvart efninu. „Ég þoldi þessi lög ekki,“ sagði hann en síðar hafi hann áttað sig á mikilvægi laganna fyrir eldri kynslóðir. „Þá átta ég mig á því hvað ég er svo mikill fáviti hér, fordómafullur og vitlaus.“

Fyrsta platan sem þeir félagar gerðu var platan Ómissandi fólk og er titillag þeirrar plötu mögulega eitt af áhrifamestu lögum Magnúsar. „Ég var með skrifstofu niðri í bæ þá sem ég vann í og við hittumst þar og gerðum plötuna þar,” segir KK.

Ný tónlist í vinnslu

Síðustu ár hefur KK mikið unnið með yngra tónlistarfólki, Mugison, Jóni Jónssyni, Bríeti, Skúla Sverrissyni, Ólöfu Arnalds, Júníusi Meyvant, Davíð Þór og fleirum. Hann segist sérstaklega þakklátur fyrir samstarfið við yngri kynslóð tónlistarfólks. „Þetta er orðið eitt það skemmtilegasta við allt þetta brölt.“

Þrátt fyrir sjötugsafmælið segist KK ekki vera hættur að semja eða taka upp tónlist. Hann segist eiga fjölda laga tilbúinna sem hann hafi einfaldlega ekki gefið sér tíma til að klára. „Ég er bara búinn að taka upp fullt af efni sem mig langar svo að klára,“ segir hann.

Hann hyggst taka sér sumarfrí í júlí og nýta það til að skoða landið en í haust hefst afmælisfögnuðurinn aftur. Þá ætlar hann að vera með tónleika um allt land til þess að fagna sjötugsafmælinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun
Fókus
Fyrir 5 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“