fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fókus

Stórleikarinn vill hætta að greiða fimm stafa mánaðarlegt meðlag

Fókus
Föstudaginn 29. maí 2026 21:30

Quaid og Buffington ásamt tvíburunum árið 2009.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Dennis Quaid freistar þess nú að hætta við mánaðarlegar meðlagsgreiðslur sínar, 13.750 dollara (1.690.000 kr.)  til fyrrverandi eiginkonu sinnar, Kimberly Buffington, vegna 18 ára tvíbura þeirra, Thomas og Zoe.

Quaid lagði fram beiðni í Stanley Mosk dómshúsinu í Los Angeles á miðvikudag. Í beiðni sinni vitnaði leikarinn, 72 ára, í skilmála skilnaðarsamnings síns og Buffington frá árinu 2018, þar sem kveðið var á um að greiðslunum myndi ljúka þegar börnin þeirra kláruðu 12th grade, sem er síðasta ár menntaskóla í Bandaríkjunum og nemendur alla jafna 17-18 ára gamlir.

Zoe útskrifaðist úr menntaskóla 23. maí en Thomas útskrifast 3. júní.

Quaid ásamt tvíburunum ári 2009.

Í beiðni Quaids kemur fram að samkvæmt skilnaðarsamningnum skyldi hann einnig greiða Buffington, 54 ára, aukalega upphæð ár hvert ef hann þénar meira en 1,3 milljónir dala. Quaid óskaði eftir því að bónusupphæðin yrði reiknuð hlutfallslega miðað við útskriftardag Zoe og Thomas í stað tekna hans yfir allt árið.

Quaid og Buffington voru gift í 14 ár og sóttu um skilnað ítrekað á meðan áður en þau skildu endanlega árið 2016. Þegar þau gengu frá skilnaði sínum árið 2018 samþykktu fyrrverandi þau sameiginlega forsjá Thomas og Zoe, sem fæddust með staðgöngumóður í nóvember 2007.

Quaid og Buffington árið 2017.

Árið 2020 lagði Quaid fram skjöl fyrir dómi þar sem hann fór fram á að dómarinn lækkaði meðlagsgreiðslur sínar og hélt því fram að hann hefði varið helmingi tímans með börnunum  og greitt allan kostnað þeirra. Quaid samþykkti að lokum að greiða enn meira svo lengi sem það væri „byggt á sanngjörnum þörfum Thomas og Zoe“.

Buffington var þriðja eiginkona Quaid. Hann var áður giftur PJ Soles frá 1978 til 1983 og Meg Ryan frá 1991 til 2001. Quaid og Ryan, 64 ára, eiga einn son, leikarann ​​Jack Quaid úr sjónvarpsþáttunum The Boys. Quaid giftist fjórðu konu sinni , Lauru Savoie, 33 ára, árið 2020.

Í fyrra sagði Quaid við Fox News Digital að  líf sitt með Savoie væri eins og „paradís“ þrátt fyrir 39 ára aldursmun. „Þetta er nánasta samband sem ég hef nokkurn tíma átt,“ sagði Quaid. „Ég veit ekki af hverju Guð beið svona lengi með að færa okkur saman, en ég er mjög ánægður að hann kom með hana inn í líf mitt , eða að ég gekk inn í hennar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun
Fókus
Fyrir 5 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“