fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Celebrating George Michael kemur til Íslands

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 30. maí 2026 11:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskum áhorfendum gefst tækifæri á að sökkva sér ofan í áratugi af frábærum lögum þegar sýningin Celebrating George Michael kemur til Akureyrar og Reykjavíkur síðar á þessu ári sem flutt er af mögnuðum söngvara og hljómsveit sem er með upprunalegan bassaleikara Wham! innanborðs.

Sýningin Celebrating George Michael hefur tryllt áhorfendur í Bretlandi og um alla Evrópu og nú kemur hún í Hof á Akureyri þann 20. nóvember og í Hörpu kvöldið eftir, 21. nóvember, eins og segir í tilkynningu.

Frá smitandi gleði Wham! til tilfinningaríkrar snilldar George Michael á sólóferli hans, þá er þessi sýning hátíð til heiðurs tónlistar, minninga, og mannsins bak við þetta allt, flutt af hrífandi nákvæmni af söngvaranum Steve Mitchell.

Flutningur Steve, sem er almennt álitinn sem einna besti flytjandi laga George Michael í heiminum, er kraftmikill og tilfinningaríkur, þar sem hann endurskapar ekki einungis lögin heldur einnig tilfinninguna fyrir flutningi George Michael á sviðinu á mismunandi tímabilum, sem sýnir tímalausa arfleifð eins besta popptónlistarmanns sögunnar.

Steve Mitchell

Fyrrum bassaleikari Wham! á sviðinu

Dave West, fyrrum bassaleikari Wham!, bætir enn meiri alvöru við sýninguna, en hann starfaði með George Michael og Andrew Ridgeley í fyrstu upptökum á Wham Rap, Careless Whisper, and Club Tropicana.

Með honum í fjögurra manna hljómsveit eru frábærir tónlistarmenn sem hafa komið fram og spilað með mörgum af fremstu tónlistarmönnum heims meðal annars Nile Rodgers & Chic, Brian May, Simply Red, Kylie Minogue og mörgum fleiri. Þeir koma með reynslu og áreiðanleika á sviðið sem áhorfendur finna fyrir í hverri nótu, og tryggja að tónlist George Michael sé flutt af virðingu, hjartnæmni og gæðum.

Tveir fjölhæfaríkir bakraddasöngvarar munu koma með kraftmikinn söng og sterka nærveru á sviðið en þeir hafa komið fram með mörgum þekktum hljómsveitum og söngvurum á fjölda tónleika, allt frá gospel til reggí og rokks.

Saman munu þessir mögnuðu flytjendur koma með ferðalag af frægum lögum sem spanna 35 ár af efni George Michael. Tónleikarnir munu klárlega koma áhorfendum í jólaskap með einu vinsælasta jólalagi allra tíma, Last Christmas, sem og danslögum eins og Wake Me Up Before You Go Go, Faith and Freedom! ‘90 og frægum ballöðum eins Careless Whisper, Father Figure and One More Try sem gerðu George Michael að stórstjörnu um allan heim.

Margir flottir viðburðir framundan

Celebrating George Michael kemur í kjölfarið á mörgum flottum alþjóðlegum sýningum sem fyrirtækið Jamboree Entertainment hefur komið með til landsins. Af tónleikum fyrr á þessu ári má nefna The Legend of Springsteen, The Ultimate Eagles, The Definitive Rat Pack and Emilio Santoro sem Elvis. Næst á dagskrá er Mania: The ABBA Tribute sem verður í Hörpu 4. september og í Hofi 5. september og síðan kemur óperusöngvarinn heimsþekkti Sir Bryn Terfel í Hörpu 10. október.

James Cundall, framkvæmdastjóri Jamboree Entertainment, segir að fyrirtækið vilji setja sér það markmið að koma með alþjóðlega tónlistarviðburði í hæsta gæðaflokki til Íslands og er spenntur að undirbúa fleiri slíka viðburði í Hörpu árið 2027.

Celebrating George Michael verður flutt í Hofi á Akureyri föstudaginn 20. nóvember klukkan 20 og í Hörpu í Reykjavík laugardaginn 21. nóvember klukkan 20. Miðar eru komnir í sölu á tix.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur