fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fókus

Mamma Mia Party hefur slegið í gegn á Selfossi

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 3. júní 2026 11:06

Heiðrún Huld Jónsdóttir, Fríða Hansen og Sædís Lind Másdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óhætt að segja að Mamma Mia Party á tónleikastaðnum Sviðinu í Miðbæ Selfoss hafi fest sig í sessi sem eitt vinsælasta partý landsins. Frá því fyrsta kvöldið var haldið fyrir rúmlega ári hefur aðsókn verið gríðarleg og uppselt á allar sýningar.

Fríða Hansen, sem leiðir kvöldið ásamt gestum sínum, segir að viðbrögðin hafi farið fram úr björtustu vonum. „Við vissum að fólk elskaði ABBA, en maður átti alls ekki von á því að þetta myndi þróast svona. Það er ótrúlegt að sjá hversu margir koma aftur og aftur,“ segir hún.

Viðburðurinn byggir ekki eingöngu á tónlist heldur þátttöku gesta. Kvöldið samanstendur af söng, dansi, spurningakeppni og fjölbreyttri dagskrá þar sem allir taka þátt.

„Fólkið í salnum er í raun stjarnan í sýningunni. Um leið og fyrstu lögin hljóma byrjar fólk að syngja með og þá myndast stemning sem erfitt er að lýsa með orðum,“ segir Fríða.

Að sögn Fríðu er sérstaklega ánægjulegt hversu sterkum sess viðburðurinn hefur náð meðal heimamanna. „Það eru margir sem hafa mætt oftar en einu sinni og sumir á nánast hverja sýningu. Það segir manni að fólk sé að skemmta sér vel.“

Síðasta sýning var síðustu helgi þetta vorið og er nú komið hlé yfir sumarmánuðina. „Við ætlum að njóta sumarsins, hlaða batteríin og snúa svo aftur í haust. Það er fullt af fólki sem bíður spennt eftir næsta Mamma Mia Party og við hlökkum til að taka á móti þeim,“ segir Fríða.

Mamma Mia Party hefur einnig haft jákvæð áhrif á mannlíf í miðbænum. Margir gestir leggja leið sína frá höfuðborgarsvæðinu, verja deginum á Selfossi og gera sér síðan glaðan dag á Sviðinu.

„Við sjáum reglulega hópa sem koma snemma, kíkja í verslanir, fara á veitingastaði og enda svo kvöldið hér eða jafnvel gista. Það er gaman að sjá hvað viðburðurinn hefur orðið stór hluti af upplifun fólks af Selfossi. Við setjum nokkrar sýningar í gang næsta vetur og við erum þegar byrjuð að taka við pöntunum frá fyrirtækjahópum sem vilja fá allan pakkann. Við getum græjað allt.” segir Davíð Lúther Sigurðarson einn af eigendum Sviðsins.

Eitt er þó víst að vinsældirnar virðast ekkert vera á undanhaldi og ABBA-tónlistin heldur áfram að sameina fólk á öllum aldri í söng og dansi.

Davíð Lúther einn eiganda Sviðsins
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fótboltaveisla í miðbæ Selfoss

Fótboltaveisla í miðbæ Selfoss
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 5 dögum

Viðurkennir að hafa verið „lítillega ölvaður“ þegar hann hraunaði yfir gagnrýnanda

Viðurkennir að hafa verið „lítillega ölvaður“ þegar hann hraunaði yfir gagnrýnanda
Fókus
Fyrir 5 dögum

Segja „skrýtið og viðbjóðslegt“ að taka upp kynlífssenur saman

Segja „skrýtið og viðbjóðslegt“ að taka upp kynlífssenur saman
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katie Price í tómum vandræðum með að leysa eiginmanninn úr fangelsi: „Ég er ekki heimsk“

Katie Price í tómum vandræðum með að leysa eiginmanninn úr fangelsi: „Ég er ekki heimsk“
Fókus
Fyrir 5 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið