fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fókus

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Fókus
Sunnudaginn 31. maí 2026 18:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klámmyndaleikkonan Bonnie Blue, eða Tia Billinger eins og hún heitir réttu nafni, segist vera ólétt. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hún heldur slíku fram en á síðasta ári sagðist hún vera ólétt, lét mynda sig með falska óléttubumbu og lofaði að streyma frá fæðingunni í beinni útsendingu. Síðar kom á daginn að Bonnie var alls ekki ólétt. En nú vill fólk meina að Bonnie sé í alvörunni ólétt, þótt margir taki fréttunum með miklum fyrirvara í ljósi reynslunnar.

Bonnie er 27 ára og varð fræg í janúar á síðasta ári þegar hún sængaði hjá rúmlega þúsund karlmönnum á aðeins 12 klukkustundum. Var þá talið að um heimsmet væri að ræða.

Síðan þá hefur hún stundað alls kyns uppátæki og margsinnis lent upp á kant við lögin. Meðal annars var hún handtekin á eyjunni Balí eftir að hafa auglýst eftir ungum drengjum til að stunda kynlíf með fyrir framan myndavélarnar.

Bonnie hefur nú sett allt á annan endann eftir að hún lýsti því yfir að hún ætlaði að halda óvenjulegt steypiboð (e. babyshower) og finnst mörgum að klámstjarnan hafi nú endanlega farið yfir línuna.

„Aðdáendur mínir verða þátttakendur í steypiboðinu sem fer fram í júní,“ sagði Bonnie í samtali við Us Weekly. „Til að fagna heilnæmri meðgöngu verður steypiboðið mitt svo sérstakt að það mun breytast í gullna sturtu (e. golden shower).“

Gullin sturta er eins konar kynlífsathöfn þar sem einn einstaklingur eða fleiri pissa á manneskju með hennar samþykki.

„Aðdáendur mínir geta þakið mig í hlandi sínu og haft samfarir við mig. Hefðbundnir steypiboðsleikir verða í gangi yfir daginn, kötturinn verður sleginn úr tunnunni og öll götin á líkamanum mínum verða slegin líka. Þungun mín hefur verið sameiginlegt verkefni og verður áfram út meðgönguna. Ég vil ekki rifna svo ég ætla að láta teygja vel á mér með reglulegum hætti.“

Eins ætlar Bonnie að selja hæstbjóðanda nafnið á barninu, þ.e. sá sem er tilbúinn að borga mest fær að velja nafnið á barni hennar.

„Ég verð með kynjaveislu með aðdáendum mínum síðar á árinu,“ sagði Bonnie sem segist eiga von á sér í nóvember.

Margir gætu haldið að Bonnie sé aftur að ljúga um óléttuna enda geta fáir ímyndað sér að nálgast meðgöngu með þessum hætti. Nýleg myndskeið af klámmyndaleikkonunni sýna þó netta óléttubumbu. Mögulega er hún þar með gervibumbu eða mögulega hefur verið átt við myndböndin með gervigreind, en einnig er mögulegt að Bonnie sé í alvörunni ólétt.

Steypiboðshugmynd klámmyndaleikkonunnar hefur vakið hörð viðbrögð.

„Barnið er ekki einu sinni fætt en hefur samt verið dregið inn í þennan úrskynjaða sirkus fyrir smelli og peninga,“ skrifar einn netverji og bætir við: „Hún er sjúkur bastarður!“

Annar skrifar: „Getur einhver hringt í barnavernd og mennina með spennitreyjurnar?“

Enn annar segir: „Hún gæti mjög líklega fætt Andkristinn. Ætti barnavernd að grípa inn í og taka barnið af henni strax?“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun
Fókus
Fyrir 5 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“