fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fókus

Ótrúleg breyting á Jóni Pétri – Sjáðu hvað hann hefur lést mikið

Fókus
Mánudaginn 1. júní 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er heldur betur kominn í stand fyrir sumarið. Þingmaðurinn og skólastjórinn fyrrverandi hefur verið í heilsuátaki síðustu vikurnar og hefur árangurinn ekki látið á sér standa.

Hann hefur leyft fylgjendum sínum á Facebook að fylgjast með gangi mála og í gær birti hann lokatölur, ef svo má segja.

Jón Pétur tók hressilega til í mataræðinu og hreyfingu en þegar átakið hófst var hann 117,3 kíló. Markmiðið var að styrkjast og komast niður fyrir 100 kíló og tókst það á dögunum. Átakið tók alls 91 dag og léttist hann um rétt rúm 18 kíló, fór úr 117,3 kílóum í 99,2 kíló.

„Ég bjó að því að hafa eiginlega alltaf verið í mjög góðu formi. Á þessum 91 degi fór ég á einhverskonar æfingu ca 80 sinnum. Sumar voru bara ganga í halla en aðrar erfiðar lyftingaæfingar og allt þar á milli,“ segir Jón Pétur í færslu á Facebook.

„Ég borðaði svo gott sem ekkert brauð og engin sætindi. Drakk engar hitaeiningar en mokaði í mig harðfiski, bláberjum, kasjúhnetum, ávöxtum, ab mjólk, fiski/kjöti, grænmeti ofl.,” segir þingmaðurinn sem kveðst hafa styrkt sig verulega á þessum þremur mánuðum.

„Er mun betri og líkamlega og geðið kemur líka með,” segir hann en færsluna og myndir frá vegferðinni má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax
Fókus
Fyrir 2 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök
Fókus
Fyrir 5 dögum

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ævintýraprinsinn Björgvin: „Hann öðlaðist vængi sem hann sveif á í marga áratugi“

Ævintýraprinsinn Björgvin: „Hann öðlaðist vængi sem hann sveif á í marga áratugi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Reiður vegfarandi hellti sér yfir Helen Mirren í London – Sjáðu myndbandið

Reiður vegfarandi hellti sér yfir Helen Mirren í London – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína