fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Bókaspjall: Móðurást á skrímsli

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 30. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski Nóbelsverðlaunahafinn Doris Lessing var flugbeittur höfundur sem gat fangað sálarlíf og samfélag í fáum og skýrum dráttum. Hið metnaðarfulla forlag Ugla, sem sendir frá sér hverja úrvalsþýðinguna af annarri, gaf fyrr á árinu út skáldsöguna Fimmta barnið eftir Lessing, en hún kom út árið 1988.

Í verkinu er rakin fjölskyldusögu Lovatt-hjónanna frá sjöunda áratugnum og fram á útgáfutíma sögunnar. Þau Harriett og David Lovatt eignast fjögur yndisleg börn og kjarnafjölskyldan er umvafin stórfjölskyldunni. Dimmur skuggi fellur á hamingju fjölskyldulífsins við fæðingu fimmta barnsins, drengsins Ben, sem er ofbeldisfullt, illa innrætt og hömlulaust barn. Heimilislífið fer á annan endann, öll orka móðurinnar fer í að annast þetta litla skrímsli og hún neyðist til að vanrækja hin börnin sín.

Er fram líða stundir stendur móðirin frammi fyrir því að velja á milli þessa meingallaða afkvæmis síns og fjölskyldunnar. En Ben er hluti af fjölskyldunni og fátt er sterkara en móðurástin. Ástandið er þannig að svarti sauðurinn heldur allri fjölskyldunni í heljargreipum en hinn möguleikinn, sem prófaður er einu sinni, er að loka hann inni á hæli, þar sem honum er illa sinnt og hann veslast upp.

Móðirin er því í ómögulegri stöðu og kostirnir sem hún stendur frammi fyrir virðast jafnslæmir. En allt breytist og tíminn reynist móðurinni liðsauki í þessari sjálfheldu.

Fimmta barnið er snilldarlega skrifuð, af miklu sálrænu innsæi, grípandi og hrollvekjandi lesning, sem ég mæli eindregið með.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur