fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fókus

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 1. júní 2026 16:06

Guðjón og Juan mættir. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólöf Magnúsdóttir, sem búsett er á Hringbraut í Reykjavík, fékk fyrir tæpu ári símtal þar sem hún lá í sólbaði heima hjá sér. Hún kannaðist ekki við númerið og í símanum var ókunnugur maður, sem kynnti sig sem Guðjón.

Í færslu í Facebook-hóp Vesturbæjarins segir Ólöf frá samskiptum þeirra og því sem hún kallar góðverk dagsins, ef ekki ársins.

„Sagðist Guðjón vilja borga fyrir að láta mála girðinguna mína. Þarna var mættur til leiks enginn annar en Guðjón Óskarsson tyggjóklessubani sem kynnti mig fyrir nýju verkefni hjá  sér sem hann kallar Krotið burt.“

Segist Ólöf hafa viljað hugsa málið, en Guðjón hafi þá útskýrt fyrir henni að hann hefði rekist á götulistamanninn Juan Arctic á förnum vegi þar sem hann var að mála veggi í borginni af og tekið hann tali.

„Juan er maðurinn sem á heiðurinn af Mario Bros verkinu á horni Hofsvallagötu og Hringbrautar og þegar þeir Guðjón kvöddust var vöknuð hjá Guðjóni sú hugmynd að bæta við verkið öðrum kafla Hringbrautar megin og fríska upp á verkið Hofsvallagötu megin. Mér var auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar sem dró þessa tvo meistara saman og sló til.“

Segir Ólöf þá félaga svo hafa mætt í gær og hafist handa og hún hlakki til að sjá hver niðurstaðan verður.

„Í dag eru þeir svo mættir með látum og ég hlakka til að sjá hver niðurstaðan verður. Mér sýnist á öllum fallegu kveðjunum sem gangandi, hjólandi og keyrandi vegfarendur eru að senda á þá félaga að það séu Vesturbæingar líka.“

Guðjón og Juan mættir. Mynd: Facebook.
Guðjón og Juan mættir. Mynd: Facebook.

Guðjón er annálaður baráttumaður fyrir fallegu umhverfi og íbúar og ferðamenn miðbæjarins sjá hann daglega þar hreinsa staura og veggi af veggjakroti og límmiðum og gangstéttir af tyggjóklessum. Guðjón var valinn Reykvíkingur ársins árið 2021 og hann er einnig gjaldkeri Íbúasamtaka miðborgarinnar.

Juan málaði Mario Bros verkið á Hofsvallagötu árið 2019. Fleiri verk hans prýða Reykjavík, eitt þeirra er á Laugavegi 77 þar sem veitingastaðurinn Erikson Brasserie er, og einnig má finna verk hans á Selfossi, Sauðárkróki, Vestmannaeyjum og víðar.

Mynd: RG/DV
Mynd: RG/DV
Mynd: RG/DV
Mynd: RG/DV

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax
Fókus
Fyrir 2 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli

Vesturport selur gersemar – Leikmunir og búningar sem ferðast hafa heimshorna á milli
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök
Fókus
Fyrir 5 dögum

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“

Segir aðra ferðamenn skemma upplifunina af Íslandi – „Margsinnis hef ég verið beðinn um að fara frá eða einfaldlega verið ýtt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ævintýraprinsinn Björgvin: „Hann öðlaðist vængi sem hann sveif á í marga áratugi“

Ævintýraprinsinn Björgvin: „Hann öðlaðist vængi sem hann sveif á í marga áratugi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Reiður vegfarandi hellti sér yfir Helen Mirren í London – Sjáðu myndbandið

Reiður vegfarandi hellti sér yfir Helen Mirren í London – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína