fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Fór í tölvupóst eiginmannsins á meðan hann var í sturtu – uppgötvaði vandræðalegt leyndarmál

Fókus
Föstudaginn 29. maí 2026 13:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fertug kona leitaði til sambandsráðgjafa The Sun eftir að hafa komist að sóðalegu leyndarmáli eiginmanns síns.

Eiginmaður hennar er 43 ára, þau hafa verið gift í 12 ár og eiga saman 10 ára son. „Þar til nýlega taldi ég við værum venjuleg fjölskylda,“ segir konan.

Óvenjulegar færslur

Þannig er mál með vexti að konan tók eftir því nokkrum vikum að óvenjulegar færslur fóru að birtast á sameiginlegum bankareikningi þeirra.

„Í fyrstu taldi ég að þetta væri einhver gömul áskrift en það var eitthvað við þetta sem ég gat ekki hætt að hugsa um,“ segir konan.

Eitt kvöldið, þegar maðurinn hennar fór í sturtu, ákvað hún að kíkja í tölvuna hans og renna í gegnum tölvupóstinn. „Nánast samstundis óskaði ég þess að ég hefði ekki gert það,“ segir konan og bætir við: „Þar voru þær allar saman – kvittanirnar fyrir OnlyFans-áskrift.“

Konan segir að það sem var verra er að þau kannast bæði við eiganda reikningsins, en hún er móðir stráks sem gengur í sama skóla og sonur þeirra.

Óvenju áhugasamur um að skutla

„Nokkrum mánuðum áður höfðum við heyrt að þessi kona væri á OnlyFans og við hlógum bæði aðeins að því. Ég hugsaði ekkert meira um málið eftir það, en hann virðist greinilega ekki hafa getað hætt að hugsa um hana.”

Konan segir að eiginmaður hennar hafi að undanförnu verið óvenju áhugasamur um að sækja son þeirra í skólann, skutla honum á fótboltaæfingar og hanga lengur í kringum skólann í stað þess að flýta sér heim eins og hann gerði venjulega.

„Ég setti aldrei spurningarmerki við þetta, en nú líður mér eins og algjörum kjána,“ segir konan.

Hún segir að hann hafi orðið náfölur þegar hún gekk á hann og spurði hann út í málið. Hann hafi afsakað sig með því að þetta væri nú bara á netinu og hann væri ekki í neinum samskiptum við umrædda konu.

„Hann hefur lofað að þetta muni aldrei gerast aftur, en ég óttast að skaðinn sé þegar skeður. Núna, í hvert skipti sem ég sé þessa konu við skólann, fyllist ég skömm og niðurlægingu.“

Deidre svarar:

„Að komast að því að eiginmaður þinn hafi í leyni verið að borga fyrir að skoða kynferðislegt efni með einhverjum sem þú þekkir er særandi, því þetta er ekki bara nafnlaust klám – þetta er persónulegt.

Það kemur því ekki á óvart að þú finnir nú fyrir sársauka, skömm og tortryggni gagnvart hegðun hans í tengslum við viðburði í kringum skólann.

Þó að hann líti hugsanlega á þetta sem „bara eitthvað á netinu“, þá er leyndin og sú staðreynd að þetta snerist um eina af mömmunum úr skóla sonar ykkar óásættanleg fyrir þig.

Í stað þess að láta gremju safnast upp, reyndu að eiga hreinskilin samtöl um traust, mörk og hvort eitthvað hafi vantað í hjónabandið ykkar, tilfinningalega eða kynferðislega.

Viðbrögð hans benda frekar til skammar frekar en að honum standi á sama, og það skiptir máli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur