fbpx
Þriðjudagur 09.júní 2026
Fókus

Samþykkti tryllta fantasíu eiginkonunnar en það endaði í martröð

Fókus
Miðvikudaginn 27. maí 2026 07:30

Myndin er úr safni. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæplega fertugur karlmaður leitaði til sambandsráðgjafa og dálkahöfundar breska blaðsins The Sun, Deidre Sanders, vegna vandamáls sem hann stendur frammi fyrir.

„Fyrir mánuði síðan var okkur boðið í fertugsafmæli frænda míns. Við fórum hvort í sína áttina þegar við komum en þegar ég gekk inn í eldhúsið nokkru síðar var eiginkona mín í djúpum samræðum við mann,“ segir maðurinn sem er 38 ára eins og eiginkona hans. Saman eiga þau fjögurra ára dóttur.

Fékk óvenjulega beiðni

„Ég kynnti mig og hann tók í höndina á mér og óskaði mér til hamingju með að eiga svona „stórglæsilega eiginkonu“ – áður en hann sagði svo hversu öfundsjúkur hann væri.“

Maðurinn segir að eiginkonan hafi greinilega verið í skýjunum með hrósið frá þessum ókunnuga manni og hún hafi verið óvenju villt þegar þau fóru heim seinna um kvöldið og stunduðu kynlíf.

Maðurinn segir að síðan hafi liðið tveir dagar og þá hafi eiginkonan tjáð honum að hún hefði fengið skilaboð frá umræddum manni þar sem hann kom sér beint að efninu. Hann hafi spurt hvort þau hjónin væru til í svokallað „cuckold-samband“.

„Þar sem ég myndi horfa á meðan hann svæfi hjá henni,“ segir maðurinn.

„Ég varð brjálaður í fyrstu og langaði að rota gaurinn – en eiginkona mín sannfærði mig um að þetta „gæti verið spennandi“. Vinur minn hafði lent í svipuðu með kærustunni sinni og sagði að hann hefði haft gaman af því, þannig að ég samþykkti þetta með trega.“

Getur endað illa

Maðurinn lýsir því svo að dóttir þeirra hafi verið í pössun eina helgi fyrir skemmstu og úr varð að þau hittu manninn sem er 42 ára og fráskilinn.

„Við fengum okkur drykki og gengum svo af pöbbnum heim til okkar. Að horfa á eiginkonu mína með honum var eitthvað annað,“ segir maðurinn. „Hún virtist gríðarlega æst en munurinn var sá að hann var stærri en ég á allan hátt. Mér leið eins og ég væri niðurlægður,“ segir hann.

Vandamálið sem maðurinn stendur frammi fyrir í dag er þess eðlis að hann getur ekki stundað kynlíf eftir þetta. „Hún segir að hún elski mig en í næstu andrá stingur hún upp á því að við hittum þennan mann aftur. Mér finnst ég algjörlega gagnslaus,“ segir hann og spyr hvað hann geti gert.

Deidre segir í svari sínu til mannsins að hann þurfi að setja fótinn niður.

„Svona „cuckold“-aðstæður geta verið slæm hugmynd. Þær kalla fram tilfinningar sem maður hefði aldrei ímyndað sér að kæmu upp á yfirborðið. Þú hefur sýnt fullkomlega hvernig það að láta fantasíu rætast getur stundum endað hörmulega. Segðu eiginkonu þinni að þetta hafi einungis verið þetta eina skipti. Leggðu til að þið prófið nýjar leiðir til að krydda kynlífið án þess að blanda þriðja aðila inn í það.”

Deidre segir að áhyggjur hans af stærð getnaðarlimsins séu óþarfar. Stærri limur geti verið sjónrænt örvandi fyrir konur en samfarir geti að sama skapi verið sársaukafullar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Bergþór lenti á vegg: „Þetta voru 2-3 vikur af algjöru helvíti“

Bergþór lenti á vegg: „Þetta voru 2-3 vikur af algjöru helvíti“
Fókus
Í gær

Sælureitur í sveitinni í Mosfellsdal – Viltu eina eign eða tvær?

Sælureitur í sveitinni í Mosfellsdal – Viltu eina eign eða tvær?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Efins um djarfa fantasíu eiginkonunnar – „Hvað á ég að gera?“

Efins um djarfa fantasíu eiginkonunnar – „Hvað á ég að gera?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ótrúlegir hlutir gerðust eftir að myndband af 85 ára konu fór í dreifingu

Ótrúlegir hlutir gerðust eftir að myndband af 85 ára konu fór í dreifingu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan lýsir því hvernig hjónabandi hennar lauk á fundi með lækni – „Þessu lauk bara þarna inni í herberginu“

Leikkonan lýsir því hvernig hjónabandi hennar lauk á fundi með lækni – „Þessu lauk bara þarna inni í herberginu“