fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fókus

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Fókus
Sunnudaginn 31. maí 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Sting rekur eitraða karlmennsku til þess að karlmenn noti hendurnar í minna mæli en áður. Erfiðisvinna sé á undanhaldi en í gegnum hana hafi karlmenn áður fengið útrás fyrir hæfileika sína og þar hafi styrkir þeirra fengið að njóta sín. Nú þegar karlmenn fái ekki sömu útrás í gegnum vinnu sína geti umframorkan brotist út í eitraðri orðræðu í samfélaginu.

Tónlistarmaðurinn segir í samtali við The Guardian:

„Sem tónlistarmaður vinn ég með höndunum allan daginn og ég er heppinn. Það er orðið sjaldgæft að nútímamenn noti í alvörunni hendurnar og krafta sína í nokkurn skapaðan hlut. Við höfum tapað einhverju hérna.“

Sting segist ekki vera með öll svörin en hann veltir fyrir sér hvort eitraða karlmennsku megi kannski rekja til þess að karlmenn hafi ekki lengur aðrar leiðir til að fá útrás fyrir styrk sinn og orku.

Vinna hefur í auknum mæli færst inn á skrifstofur og fyrir framan tölvur. Dregið hefur úr líkamlega erfiðri vinnu fyrir bæði konur og karla.

„Ríkidæmi Bretlands varð til í kolaámum, stálbæjum, milluþorpum og höfnum. Öllum þessum hæfileikum var hent á haugana í skiptum fyrir draum [Margaretar] Thatcher’s um hagkerfi sem byggir á þjónustu,“ segir tónlistarmaðurinn en Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, var þekkt fyrir deilur sínar við verkalýðinn.

Sting hefur lengi velt þessu fyrir sér með erfiðisvinnu og karlmennsku. Hann gerði söngleikinn The Last Ship sem byggði á æsku hans og sambandi hans við föður sinn, Ernest Sumner, sem starfaði við skipasmíði í Wallsend. Sting rifjaði þar upp hversu stolt samfélagið var af þessum iðnaði, en í söngleiknum má sjá eina persónuna, karlmanna, velta fyrir sér hver hann sé eiginlega ef hann hafi ekkert skip til að smíða. „Hver er tilgangur okkar karlanna ef við höfum ekkert skip að klára?“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun
Fókus
Fyrir 5 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“