fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fókus

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Fókus
Miðvikudaginn 3. júní 2026 09:30

Ted Danson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Ted Danson varð heimsþekktur fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Cheers, sem sýndir voru á árunum 1982-1993. Í nýlegum þætti af hlaðvarpi sínu, Where Everybody Knows Your Name, ræðir Danson, sem er orðinn 78 ára við leikkonuna Lisu Ann Walter. Óhætt er að segja að svar hans hafi verið óvænt þegar hún spurði hann „hvað gerðist þegar þú áttaðir þig á því hvað þú værir flottur?“

„Ég ætla ekki að fara of langt aftur í tímann því það er ekki nauðsynlegt, en ég var bókstaflega gaurinn sem var með nakta konu fyrir framan mig og hugsaði: „Í alvöru?“ Ég leit yfir öxlina og hugsaði: „Áttu við mig?““ sagði hann. „Það var ekki fyrr en ég var á öðru ári í Cheers þegar ég ákvað að hætta þessum efasemdum.“

Mynd af leikaraliði Cheers með Ted Danson, Kirstie Alley, Woody Harrelson, George Wendt, Kelsey Grammer, Rhea Perlman og John Ratzenberger í aðalhlutverkum.

Leikarinn sagði að alltaf þegar hann væri ekki á tökustað og umræða kom upp um stöðu hans sem kyntákn , þá byrjaði hann að mótmæla.

Hann hélt áfram og sagði að þegar einhver hrósaði honum og sagði við hann „þú ert svo sexý og svo fyndinn“, rakti hann það til ákvörðunar framleiðanda um að ráða „mjög sexý konur til að horfa á Sam Malone og segja: „Vá, hann er sexý.“

Walter fullvissaði Danson síðar um að þótt hann hefði kannski ekki fundið fyrir því, þá „værir þú að selja það“ og að það snerist ekki bara um „konurnar sem þeir setja í kringum þig“.

Ted Danson í Cheers

Danson lék Sam Malone í þáttunum „Cheers“ í meira en 12 ár, frá 1982 til 1993, og vann hann tvenn Emmy-verðlauna sem aðalleikari í gamanþáttaröð. Þáttaröðinni lauk eftir 11 þáttaraðir þegar Danson ákvað að  hætta í þáttunum  til að sækjast eftir öðrum tækifærum, en framleiðendur ákváðu þá að þetta væri komið gott.

Eftir Cheers lék Danson í kvikmyndum eins og Pontiac Moon og Saving Private Ryan og vinsælum sjónvarpsþáttum á borð við Becker, Damages, Curb Your Enthusiasm og CSI: Crime Scene Investigation.  Sem djöfull í Good Place fékk hann þrennar tilnefningar til Emmy-verðlauna.

„Mér finnst dásamlegt þegar 12 ára börn og foreldrar þeirra koma til mín og segja mér hversu mikið þau elska að horfa á The Good Place“ sagði Danson við  Vanity Fair  í júní 2019. „Ég er bara mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að vera hluti af þáttaröð sem ég held að hafi í raun, á dásamlegan, kjánalegan, hamingjusaman og upplyftandi hátt, eitthvað að segja.“

Danson leikur nú í þáttunum Man on the Inside á Netflix, þar sem hann leikur fyrrverandi prófessor sem finnur sér nýjan feril sem njósnari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök
Fókus
Fyrir 4 dögum

Farþegi gagnrýndur harðlega vegna þess sem hann gerði í flugi – Sjáðu myndina

Farþegi gagnrýndur harðlega vegna þess sem hann gerði í flugi – Sjáðu myndina
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína
Fókus
Fyrir 1 viku

Samþykkti tryllta fantasíu eiginkonunnar en það endaði í martröð

Samþykkti tryllta fantasíu eiginkonunnar en það endaði í martröð