fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Meistarakokkarnir á Matey heilluðu gesti upp úr skónum með listrænni matargerð

Fókus
Þriðjudaginn 4. október 2022 15:00

Fjórir veitingastaðir út í Eyjum voru með gestakokka sem fengu að spreyta sig á íslenska sjávarfanginu, íslensku sprettunum frá Aldingróðri sem ræktaðar eru úti í Eyjum og bjórnum frá Brothers Brewery. Sjöfn heimsótti meðal annars Einsa Kalda og fékk að líta í eldhúsið þar sem meistarakokkurinn Ron Mckinlay galdraði fram sælkerakræsingar á stórfenglegan hátt. MYNDIR/AÐSENDAR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðirnir í Eyjum Gott, Slippurinn, Einsi kaldi og Næs fengu til sín erlenda meistarakokka sem hafa gert garðinn frægan og buðu upp á margrétta sérseðla sem slógu í gegn. Allir staðirnir voru með gestakokka sem fengu að spreyta sig á íslenska sjávarfanginu, íslensku sprettunum frá Aldingróðri sem ræktaðar eru úti í Eyjum og bjórnum frá Brothers Brewery. Í síðasta þætti voru veitingastaðirnir GOTT og Slippurinn heimsóttir sem og bruggsmiðja Brothers Brewery.

Í þætti kvöldsins byrjar Sjöfn að heimsækja fiskvinnslufyrirtækið Leo Seafood þar sem leyndardómar sjávarfangsins búa. Þar hittir Sjöfn Gunnar Pál Hálfdánsson markaðsstjóra sem leyfir Sjöfn að skyggnast í vinnslu og fylgjast með fisknum koma nýveiddan og ferskan beint inn í vinnsluna.

Skapandi kokkar með nýstárlega og frumlega rétti

Í þættinum heimsækir Sjöfn veitingastaðinn Næs og hittir Gísla Matthías Auðunsson yfirkokk og eiganda staðarins og gestakokkana, hjónin, Junayd frá Trinidad & US og Fjölla frá Kosovo. Þau opnuðu veitingastaðinn Badger árið 2016 og sköpuðu  þannig nýja villt- til borðs matreiðsluupplifun sem á sér enga líka, sem vantaði í hverfinu þeirra, Prosect Lefferts Garden í New York. Þau leggja mikið upp úr því að vegar með hráefni úr nærumhverfi sínu og leita meðal annars uppi framandi grænmeti og öðruvísi hráefni. Hver réttur eru vandlega útbúinn, undirbúinn og færður úr eldhúsinu til viðskiptavinarins af hjónunum sjálfum. Hjónin eru einstaklega skapandi kokkar sem bjóða upp á matseðil í Omakase-stíl. Þau fóru að kostum í matargerð sinni á sjávarréttahátíðinni, framreiddu nýstárlega og frumlega rétti, á listræna og fallegan hátt sem aldrei fyrr hafa sést hér á landi.

Ron McKinlay lék listir sínar í eldhúsinu

Síðan liggur leið Sjafnar til Einars Björns Árnasonar á Einsa Kalda þar sem hún fær að kíkja í eldhúsið til hans og gestakokksins, Ron Mckinlay hefur ávallt elskað að elda mat. Ron er frá Vancouver og spilað ruðning eftir að hann hafði lokið prófi í matreiðslu í heimabæ sínum. Eftir meiðsl bundu enda á feril hans í ruðningi fór hann aftur til Kanada og sneri sér alfarið að matreiðslunni. Með mikilli þrautseigju tókst honum að komast í þjálfun undir Michelin-stjörnukokkinum Tom Kitchin, sem átti eftir að verða mikill áhrifavaldur og leiðbeinandi hans. Ron eyddi næstu fjórum árum á The Kitchin og eldaði klassískan franskan mat með skosku hráefni sem stórfenglegri útkomu. Ron fór á kostum í eldhúsinu hjá Einsa Kalda og galdraði fram sælkera kræsingar þar sem brögð og samsetning heilluðu matargesti enda töfrum líkast.

Rækta grænsprettur allan ársins hring

Margir tóku þátt í þessari hátíð, meðal annars fyrirtækið Aldingróður sem sérhæfir sig í ræktun á sprettum. Sjöfn heimsækir eigendurna, hjónin Einar Sigurð Einarsson og Ingunni Þóru Einarsdóttur, en þau standa vaktina ein og sjá um reksturinn og ræktina alfarið sjálf með mikilli ástríðu og natni, allt handgert að alúð. Þau rækta grænsprettur allan ársins hring fyrir mötuneyti og veitingastaði. En sprettur eru í raun lítið grænmeti og litlar kryddplöntur sem eru ræktaðar þar til fyrstu kímblöð plöntunnar hafa komið fram. Sjöfn fær að heyra aðeins um tilurð ræktunar og innsýn í Aldingróður.

Það má með sanni segja að Vestmannaeyjar séu komnar á heimskort matgæðinga en sjávarréttahátíðin MATEY sannaði það. Í kvöld er seinni hluti um sjávarréttahátíðina MATEY þar við fáum að sjá meistarakokka töfra dýrðlega rétti úr hráefni úr Eyjum eftirminnilegan hátt og bjóða upp matarupplifanir sem lyfta matargerðinni á hærri plan. Meira um sjávarréttahátíðina MATEY í þætti kvöldsins Matur og heimili á Hringbraut klukkan 19.00 og aftur klukkan 21.00.

Brot úr þætti kvöldsins má sjá hér:

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“
Hide picture