
Þeir þrír mexíkósku leikvangar sem hýsa HM í sumar raða sér efstar á lista er snýr að því hvar er hægt að fá ódýrasta bjórin á mótinu.
Breska blaðið The Sun tók saman. Bjórinn kostar aðeins rúm 2 pund (340 krónur) á Akron leikvanginum í Guadalajara og Azteca leikvanginum Mexíkóborg, en er strax rúmlega tvöfalt dýrari í Monterrey.
Mótið er, auk Mexíkó, haldið í Badaríkjunum og Kanada en ódýrasti bjórinn á bandarískum leikvangi verður á Mercedes Benz leikvanginum í Atlanta. Er hann á 6,37 pund (1061 krónur), rétt eins og á BC Place í Vancouver, en þar færðu ódýrasta bjórinn á leikvangi í Kanada.
Bjórinn er dýrastur í Santa Clara og Inglewood í Bandaríkjunum, en þar er hann á 10,49 pund (1748 krónur)
Hér að neðan má sjá listann í heild.
