

Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp vikuna í Íþróttavikunni á 433.is.
Þær óvæntu fréttir bárust á dögunum að FH skoðaði það að leggja gervigras á aðalvöll sinn.
„Ég var á vaktinni, kveikti á Dr. Football og heyrði Brynjar Benediktsson tala um þetta.
Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna. Þetta eru hörðustu grasmenn landsins. Ég hringdi því í Davíð Þór Viðarsson og hann játaði þessu, viðurkenndi að völlurinn væri ekki í góðu standi þó komið sé inn í júní,“ sagði Hörður.
„Menn eru kannski að játa sig sigraða þarna. Ég veit að Skagamenn eru langt komnir í sinni vinnu, ég er viss um að Keflvíkingar myndu vilja það.
Við þurfum að átta okkur á því hvar við búum og hversu langt mótið er orðið. Ég vil nánast gera kröfu á það að lið spili á gervigrasi,“ sagði hann enn fremur áður en Helgi bætti við:
„Færeyingar hafa verið með öll lið á grasi í nokkurn tíma og byrja mánuði fyrr en við.“
Þátturinn er í spilaranum.